17.03.1923
Neðri deild: 22. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í C-deild Alþingistíðinda. (2407)

68. mál, gerðardómur í kaupgjaldsþrætum

Flm. (Bjarni Jónsson):

Engin þjóð í heimi er svo sett sem vjer Íslendingar. Þar er skemst af að segja, að aðrar þjóðir hafa flestar marga atvinnuvegi og fylgir allmikill styrkur hverjum þeirra og nálgast meira og minna jafnvægi þeirra í millum. Og þær eru svo settar, að þær standa nokkurn veginn jafnrjettar, þótt kyrstaða komi í eina atvinnugreinina eða hún verði fyrir tjóni, jafnvel hruni. Þetta kemur af því, að svo margar stoðir renna undir hagdeild þjóðarinnar.

Vorum hag er alt öðru vísi komið. Varla eru teljandi nema tvær atvinnugreinar, búnaður og útgerð. Og ef önnurhvor þeirra verður í verulegur háska stödd, þá er öllu landinu hætta búin. En þótt nú báðar þessar atvinnugreinar sjeu svo affararíkar fyrir hag landsins sem nú var sagt, þá ber þó frá, hve miklu riðameiri útgerðin er. Hún er margfalt fjárfrekari en búnaðurinn, svo sem hlutfallið sýnir milli lánsfjár beggja.

Nákvæmar upplýsingar um þetta ætlaði jeg að reyna að leggja hjer fram, en gat það ekki, þar sem líkar skýrslur fengust ekki í bönkunum nú, og verður því ágiskun að nægja. En samkvæmt henni er talið, að útgerðin sje um 6 sinnum fjárfrekari en búnaðurinn, í allra minsta lagi. Hún kaupir einnig miklu meira af erlendum vörum og þarf því að flytja miklu meira fje milli landa eða þarf miklu meira á erlendum gjaldeyri að halda. En hún flytur og margfalt meira út, sem sjá má af þessum samanburði:

(Hér vantar töflu: þing 35-C-0481-064- dálkur 640).

Hjer er svo miklum fjárhæðum velt og hjer er svo þrautnýtt lánstraust banka og einstaklinga, að alt landið er í beinum voða, ef útgerðinni hlekkist mikið á, og landshrun, ef hún kolfellur. Annað er og mikilsvert í húfi, þar sem er líf og atvinna alls þorra af bæjarbúum, því að enginn atvinnugrein kemst þar í hálfkvisti við útgerðina, er um fjölda þeirra manna ræðir, sem hafa atvinnu af henni, nema búnaðurinn.

Búgarðar manna eru dreifðir mjög og afskektir og eru því engin samtök milli vinnusala nje vinnukaupenda úti um sveitirnar, enda er kaupgjald þar miklu hærra en þeirra manna, sem í bæjum búa, því að menn fá þar hús og heimili, föt (að nokkru) og fæði og kaup að auki. Og þótt misfarist búskapur nokkuð eða sala afurða, þá er oftast nær lífi manna borgið sakir þess, að lengi má lifa á því, er búið veitir til lífsviðurværis, því að drjúgt er það, sem drýpur. í bæjum er þessu öðruvísi farið. Þar er þjettbýli, þar er mannmergð, en ekkert til lífsviðurhalds, ef atvinnan fellur niður. Því hafa komið upp samtök meðal vinnusala um framboð og verð þeirrar vöru. Slík samtök eru nú sjálfsögð, og má eigi án þeirra vera. En venjulega koma þar á móti samtök eða samvinna milli vinnukaupanda. Þessir tveir aðiljar, seljendur og kaupendur vinnunnar, þæfa nú málið í samningum sín á milli og koma sjer þá venjulega saman um verðið, og fer þá alt vel. En því er ver, að oft kemur upp úlfúð milli þeirra og þykkja, og ræður þá meira kapp en forsjá, og gera menn þá verkfall eða verkbann og stöðvast við það atvinnan um langan eða skamman tíma.

Nú er jeg kominn að því atriði máls míns, sem jeg hefi stefnt að. En það er hið ógurlega tjón, sem stafar af því, að slíkur atvinnuvegur sem útgerð vor er liggi niðri tímum saman, og sama er um aðrar atvinnugreinar í smærri stíl. Þessu tjóni vildi jeg megna að afstýra, og fyrir því hefi jeg borið frv. þetta fram. Á tveim undanförnum þingum hefi jeg ætlað mjer að koma fram með frv. um gerðardóm í kaupþrætumálum. En jeg heyrði hvað eftir annað, að hv. þm. verkamanna(JB)var því mótfallinn sakir þess, að þá var ekki um málsskot að ræða, og ljet jeg þá dragast úr hömlu. En nú hefi jeg fundið ráð til þess, að fleiri dómstig verði í gerðardóminum en eru hjer á landi í málum, sem varða menn langtum meira, svo sem t. d. sakamálum og öðrum málum, þar sem líf og heiður liggur við. Þykir mjer nú fullkosta báðum aðiljum, og vænti þess, að málið gangi fram á þinginu. Jeg vil biðja menn að hleypa því til 2. umr. og láta það koma í allsherjarnefnd. Vil jeg biðja nefndina að gera í nokkrum stöðum skýrari ákvæði og bæta smávægis inn í. Mjer kemur í því sambandi ein grein í hug, sem stóð í Alþýðublaðinu um þetta, þar sem bent var á með rjettu, að ákvæði væri sett um það, að menn mættu hvorki gera verkbann nje verkfall meðan málin væru í samningum eða í gerð, og mætti þá og ákveða, að málaferlin mættu eigi standa lengi og mætti vel ákveða tíma í sjálfum lögunum, því að hjer er jafnan þörf á skjótum og góðum úrskurði.

Jeg vona, að með tilstyrk nefndarinnar og annara þingmanna komist nú hjer á góð og bráðnauðsynleg lög. Munu þau verða til þess að afstýra tjóni á atvinnuvegum vorum, og einkum varðveita vinnusala bæði fyrir yfirgangi vinnukaupanda og fyrir illum ráðum þeirra manna, er þykjast vilja þeirra hag, en hafa þann eina tilgang að stikla á herðum þeirra upp í þær trúnaðar- og valdastöður, sem hugur þeirra stendur til.