16.03.1923
Neðri deild: 21. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (245)
12. mál, aðflutningsbann á áfengi
Sveinn Ólafsson:
Jeg gat þess við 2. umr. þessa máls, að jeg hefði í hyggju að bera fram brtt. við 3. umr.; er það brtt. sú, sem nú liggur fyrir á þskj. 131. Fer brtt. mín í þá átt að tímabinda undanþáguna frá bannlögunum, en hafa eigi lögin fortakslaus í þessu efni, eins og frv. þetta ætlast til. Liggja hinar sömu ástæður til þess að tímabinda nú, sem lágu til þess á síðasta þingi. Undanhaldið er algerðara, ef ekki er tímabundið. Það liggur í þessu frv. um fortakslausa undanþágu einskonar, yfirlýsing um, að okkur sje þessi ráðstöfun geðfeld og við veitum þessa undanþágu af fúsum vilja. Get jeg ekki sjeð af upplýsingum þeim og plöggum, sem snerta Spánarsamningana í fyrra, að nauðsyn reki til þessarar undanþágu til lengdar, og vil jeg því einskorða hana við árið 1927. Breytingin á 1. gr., eins og jeg ætlast til að hún verði, sem sje að undanþágan gerist fyrst um sinn til 1927, gefur í skyn, að hún geti orðið framlengd eftir 1927 eða framvegis. Frv. ákveður aftur undanþáguna fortakslausa, sem jeg sje ekki neina gilda ástæðu til að gera.
Mjer hefir verið svarað því áður, að þótt lögin ákveði undanþáguna fortakslausa, þá sje ætíð hægt að breyta þessu, ef þingið vilji: er það að vísu satt, en slík breyting getur orðið torsótt og tafsöm, þar sem aðferð sú, er jeg vil fylgja, er skýlaus og einföld, en fullnægir þó þörfinni að sinni. Jeg vil ekki sýna Spánverjum þá auðmýkt og undirgefni, sem felst í því að hafa undanþáguna fortakslausa, eins og vjer værum að umbuna kærleiksverk Spánverja. Jeg hefi altaf skoðað samningana sem nauðungarráðstöfun og litið á undanþáguna eins og afleiðingu kúgunar, svo sem hún auðvitað er, og felst það í brtt. minni, að vjer álítum þetta vera neyðar- og bráðabirgðafyrirkomulag. Mætti vel svo fara, að einbeittleikinn í að tímabinda undanþáguna ýtti undir stuðning útlendra bannvina, er hafa sýnt oss samúð í þessu máli, og gæti það fyr en varði leitt til þess, að vjer losnuðum úr þessum spánska læðingi og gætum felt þessa ógeðslegu undanþágu niður fyrir fult og alt.
Læt jeg svo skeika að sköpuðu um forlög tillögunnar og fjölyrði ekki meira um hana að sinni, og geta nú háttv. þm. valið till. minni þá meðferð, sem þeim sýnist.