24.02.1923
Neðri deild: 5. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í C-deild Alþingistíðinda. (2485)
4. mál, embættaskipun
Forsætisráðherra (SE):
Mjer kom það dálítið á óvart að heyra hv. 2. þm. Skagf. (JS) tala á móti frv. þessu. Jeg gat ekki varist þess að hugsa: Og þú líka, barnið mitt Brútus.
Hann taldi, að ef sýslurnar yrðu svona stórar, þá mundu lærðir lögfræðingar setja sig niður í sveitunum.
Þetta er misskilningur. Lögfræðingarnir setjast niður í stærri kaupstöðunum; út um sveitirnar hefðu þeir aldrei nægilegt að gera. Sýnir ástæða þessi, að erfitt er að vega á móti frv. með rökum.
Þá sagði hann, að hætta yrði á því, að sjaldan næðist til sýslumanna heima. Á því yrði ekki mikill munur frá því sem nú er, og hefi jeg ekki heyrt um það kvartað.
Þá sagði hann, að ekki væri ástæða til að láta sýslumenn hafa skrifstofufje, ef svo lítið væri að gera hjá þeim. Til þessa er því að svara, að margir, t. d. sýslumaður Dalamanna, hafa mjög lítið skrifstofufje, og enn fremur, að það verður hlutfallslega dýrari allur skrifstofurekstur, þegar embættin eru smá en mörg. Veldur því hitun o. fl. Mundi sparast samkvæmt frv. um 18 þús. kr., og mætti verja því fje til skrifstofukostnaðar hinna nýju embætta.
En öllum má vera það ljóst, að hin mesta nauðsyn ber til þess í okkar litla þjóðfjelagi, að færustu mennirnir, og þeir sem í þýðingarmestu embættunum sitja, fáist ekki við skýrslugerð og önnur þau störf, sem hver óvalinn maður getur int af hendi. Slíkt er hinn mesti ósparnaður. Bestu kraftarnir eiga að hafa tilsvarandi viðfangsefni að glíma við. Þetta vinst, ef embættin eru stór.
Þá skal jeg víkja nokkru að hæstarjetti. Sú till. kom fram í fyrra, að fækka dómendum um tvo og búa til millirjett. Hygg jeg, að þetta hefði gefið góða tryggingu, en sparnaður hefði enginn orðið. Þvert á móti. Hin till., sem líka kom fram, um að fækka dómendum um tvo, án þess að millirjettur verði stofnaður, er líka athugunarverð, en jeg var mjög deigur við að koma fram með frv., sem veikti svo okkar nýstofnaða hæstarjett.