24.02.1923
Neðri deild: 5. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í C-deild Alþingistíðinda. (2488)

4. mál, embættaskipun

Eiríkur Einarsson:

Ekki þarf jeg sem Árnesingur að vera hæstv. stjórn vanþakklátur fyrir það, að í þessu sýslumannafrv. ætlar hún valdsmanninum í Vestur-Skaftafells-, Rangárvalla- og Árnessýslu að hafa heimilisfang og aðsetur í hinni síðasttöldu sýslu, en hvort öðrum þykir jafnsjálfsagt að lögbjóða það, er annað mál.

Annars er skemst frá að segja, að jeg er frv. mótfallinn. Það er handahófsverk; embættum einhvern veginn haugað saman. Fækkað sýslumönnum að nafninu til, en störfunum ekki ráðstafað, störfum, sem þó mun ætlast til að haldið sje áfram.

Jeg held því að vísu fram, að þing og stjórn þurfi að gera alt sitt til í þeim efnum að eyða og fækka óþarfa embættum í landinu, og síst af öllu fjölga þeim. En með þessu frv. er byrjað á öfuga endanum. Sýslumannaembættin eru gömul og samrgóin meðvitund þjóðarinnar um embættismenn sem þarfa menn og nauðsynlega, hvern í sinni sýslu. Frv. þessu mun því fyrst og fremst mótmælt af almenningi vegna eðlilegrar fastheldni og trygðar við afgamla embættaskipun. Er þetta því eðlilegra sem bændum finst, og það með rjettu, að þar sem sýslumaðurinn er, eigi þeir rjett á leiðbeiningu og handleiðslu um öll þau mál, er á hans sviði liggja, málefnum viðskiftalífsins. Þetta er svo verulegt atriði og mikilsvert, að síst er að furða, þótt bændur í hinum dreifðu og strjálsbygðu hjeruðum landsins vilji ekki láta lausa þessa embættismenn sína, eða fækka þeim svo, að helmingi torveldara eða jafnvel ómögulegt verði á eftir að njóta þess liðsinnis, er góður sýslumaður getur veitt, og tryggingin fyrir, að þessir embættismenn batni við að fækka, er engin. Og ekki nóg með það; sparnaðurinn, er frv. hefði í för með sjer, yrði sennilega enginn. Ef hann ætti einhver að vera, yrði störfunum að fækka; þeim, sem falið yrði að gegna þeim, hlyti ríkið að borga fyrir starfa sinn, en verkunum yrði bara slegið á dreif og alt gert óvissara og sundurlausara en áður, ef þessi sýslusameining ætti fram að ganga. Annað mál væri, ef dómsvald og umboðsvald yrði hreinlega aðskilið, en því er nú ekki að heilsa.

Að byrja embættisniðurskurðinn á sýslumönnunum, væntanlega í óþökk þorra landsmanna, sjerstaklega sveitabænda, er einn liðurinn í þeirri tæmingar og undanhaldspólitík, er flest sækir nú í og stefnir frá fjalli til fjöru.

Um kjördæmi mitt, Árnesssýslu, þarf jeg fátt að segja í þessu sambandi; sameining þessara þriggja sýslna er fjarstæða; það er nóg.

það á ekki að byrja á sýslumannaembættunum, heldur nýembættunum í Reykjavík, skriffinskuembættum síðustu ára; þau eru langdýrust og langóþörfust. Það á að ráðast á skriffinskuna sjálfa; nýju skrifstofubáknin. Meðan skýrslurnar, í meðallagi þarfar, eru heimtaðar, verður einhver að skrifa þær. Sameinum hagstofuna stjórnarráðinu og leggjum niður „mál- og vogar-embættið“. Þetta nefni jeg til dæmis, en áfram mætti halda. Einungis að byrja ekki rangsælis, og sá má ekki höggva, er hlífa skyldi.