24.02.1923
Neðri deild: 5. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í C-deild Alþingistíðinda. (2490)
4. mál, embættaskipun
Forsætisráðherra (SE):
Það er ástæðulaust, sem hjer hefir verið haldið fram af tveimur hv. þm., að 300 kr. árslaunin, sem sýslunefndaroddvitarnir eiga að fá, mundu fljótlega hækka og sparnaðurinn þar með minka. Sýslunefndir eru þvert á móti vanar að fara gætilega með fjármál sín, en eðlilegt, að þær borgi sjálfar oddvitunum. Störfin verða heldur ekki svo mikil, að ástæða verði til hárra launa.
Þar sem talað hefir verið um embættasamsteypur hjer í Reykjavík, í sambandi við þetta mál, og sagt, að þær væru nauðsynlegri og betur framkvæmanlegar en það, sem stjórnin fer fram á, skal jeg gefa nokkrar upplýsingar um vín- og tóbakseinkasöluna, sem aðallega virðist vera mönnum þyrnir í augum. Það er ekki núverandi stjórn, heldur Alþingi sjálft, sem hefir stofnað þarna nýtt embætti, þar sem var eftirlitsmaður með lyfjabúðum. En stjórnin hefir ekki gert annað en það, sem sjálfsagt var, að fá umsjónina með vínsölunni einnig í hendur þessum sama umsjónarmanni. Enginn annar maður hefir verið ráðinn lengur en til núverandi þings, nema forstöðumaðurinn til 3 ára, og getur það ekki talist langur tími, og jafnvel undarlegt, að hann skuli hafa viljað taka við starfinu á þann hátt.
Jeg vil svo aðeins endurtaka það enn einu sinni, að það bæði er og hefir reynst erfitt að koma fram með nokkur rök gegn þessum sparnaði, ekki síst fyrir þá menn, sem þykjast vera sparnaðarmenn. Því ef menn eru það í raun og veru, hljóta þeir að fylgja þessum frumvörpum stjórnarinnar.