02.05.1923
Neðri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í C-deild Alþingistíðinda. (2499)

4. mál, embættaskipun

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):

Það hefir verið gerð svo ítarleg grein fyrir skoðun minni hl. í nál. á þskj. 85, að jeg þarf þar litlu við að bæta. Enn fremur eru nefndarhlutarnir að miklu leyti sammála, og þar eð hv. frsm. meiri hl. (MG) hefir gert mjög ítarlega grein fyrir afstöðu hv. meiri hl., þá get jeg í mörgum atriðum látið það nægja líka fyrir hönd minni hl. Aðalmismunurinn á afstöðu nefndarhlutanna er sá, að okkur minni hl. mönnum þykir rjettast að leggjast ekki svo á móti frv., að alt verði felt, sem það hefir fram að færa. Fyrst og fremst lítum við svo á, að sum atriði þess mættu vel ná fram að ganga, og gætu í raun og veru leitt til nokkurs sparnaðar. Auk þess þótti okkur rjett að sýna frv. alla þá hlífð, sem skoðanir okkar leyfðu, svo að ekki sje að óþörfu dregið úr viðleitni stjórnarinnar í að koma fram með till. til sparnaðar, fyrir háttv. Alþingi, um að fækka embættismönnum landsins eins og kostur er á.

Við viljum þá fyrst og fremst ekki, að lögsagnarumdæmin verði svo víðlend, að sýslumönnum sje ekki kleift að hafa á hendi þá forystu í hjeraðsmálum, sem þeir hafa haft til þessa, og er annars gerð ítarleg grein fyrir þessu í nál.

Að því er snertir þessar 2 sameiningar, er á komast, ef till. okkar verður samþ., þá skal jeg taka það fram, að um sameiningu Dala- og Strandasýslu hefir verið talsvert rætt hjer áður. Hefir hv. þm. Str. (MP) á síðasta þingi borið fram frv. þess efnis, en það var felt. Greiddi jeg atkv. með sameiningunni, og myndi jeg gera það enn, ef fyrir lægi frv. um sameiningu þessara tveggja sýslna. Jeg skal þó taka það fram, að jeg lít svo á, er um slíka embættasameiningu er að ræða, að heppilegra sje að framkvæma hana án lagaskipunar, á þann hátt, að setja fyrst mann til að gegna báðum embættunum, er annað losnar. Er sú aðferð líklegri til að vekja minni mótstöðu, því að ef góður maður er settur, er ólíklegra, er hann hefir haft tíma til að afla sjer vinsælda, að óskað verði, að sameiningunni verði riftað aftur. Hitt er líklegra, að fullnaðarsameining nái þá fram að ganga með samþykki allra aðilja. Þetta mun heppilegri aðferð en að setja löngu fyrirfram lög um slíka sameiningu, sem hætt er við að kunni að vekja megna mótspyrnu.

Þetta á líka við um sameiningu Rangárvalla- og Skaftafellssýslna. Þetta umdæmi er mjög erfitt yfirferðar, og yrði þá varla mikill sparnaður að sameiningu þessara sýslna, en þó mun þetta engu að síður gerandi. Um Austur- Skaftafellssýslu er það að segja, að sem stendur hefir hún mjög lítið af sýslumanni sínum að segja, og mundi henni lítið við bregða, þótt þessi breyting kæmist á. Myndi sjálfsagt hyggilegast, að sýslumaðurinn yrði þá áfram búsettur í Vík í Mýrdal, eins og verið hefir.

Jeg skal svo að lokum taka það fram, að hvorugur okkar minni hl. manna myndi hafa borið fram frv. um þetta á þessu þingi, en við höfum, af þeirri ástæðu, sem jeg tók fram, viljað benda á þessa leið, til að bjarga því, sem nýtilegt er í frv. hæstv. stjórnar. Og ef hæstv. stjórn vill þiggja þessar till. okkar, þá munum við greiða atkv. með þeim. En hins vegar ætlumst við til, að hæstv. stjórn taki nú vörn málsins í sínar hendur, því jeg hefi hugsað mjer að mæla ekki frekar fyrir því en jeg hefi nú þegar gert í þessari framsöguræðu minni.