16.03.1923
Neðri deild: 21. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í B-deild Alþingistíðinda. (251)
12. mál, aðflutningsbann á áfengi
Forsætisráðherra (SE):
Jeg vil aðeins taka það fram áður en atkvæði ganga um brtt. háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), að svo framarlega sem hún verður samþykt, þá verður að semja af nýju við Spánverja og á nýjum samningagrundvelli. Loforð þeirra um bestu kjör eru bundin við það, að innflutningur vína þeirra, er í samningnum greinir, sje eigi bundinn neinni sjerstakri tímatakmörkun. Jeg tel það skyldu mína að skýra háttv. deild frá þessu.