02.05.1923
Neðri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í C-deild Alþingistíðinda. (2513)

4. mál, embættaskipun

Bjarni Jónsson:

Jeg treysti mjer ekki til að mæla betur á móti þessu frv. en hinir tveir hv. þm. hafa gert, er síðastir töluðu. Annar þeirra hefir sagt, að skrifari sýslumanns eins hafi annast um öll vandasömustu störfin, eins og t. d. tollreikningana. Það er nú gott og blessað. En með þessu finst mjer hv. þm. vera að ráðast á sýslumann þann, sem hlut átti að máli, meira en góðu hófi gegndi. (LH: Orð mín rangfærð!). Það væri nógu fróðlegt að vita, hver þessi sýslumaður hafi verið, sem stóð svo prýðilega í stöðu sinni, að hann kom ekki nærri vandasömustu störfunum. Það er rjett, að hv. þm. láti okkur heyra nafn hans. (LH: Það liggur ekki á). Jú, þegar ráðist er á einstaka menn, þá er sú krafa sjálfsögð, að fá að heyra nöfn þeirra, svo að hægt sje að rannsaka, hvað hæft sje í árásunum.

Annars eru þessir hv. þm. farnir að fika sig upp á skaftið. Þeir vilja nú helst, að stjórnin taki frv. aftur og leggi fyrir næsta þing annað frv. miklu yfirgripsmeira, þannig, að skorin yrðu niður embætti fiskimatsmanna og ullarmatsmanna og þess háttar drasl. Allan þennan sparnað vildi jeg helst kjósa, ef mjer þætti fært að fara út á þær götur. En jeg hefi ekki sömu trú og þessir hv. þm., að nóg sje af hæfum og duglegum mönnum til þess að gegna störfum sýslumanna fyrir minna kaup. Jeg hygg, að sýslumenn sjeu færari til slíks heldur en bæði þessir hv. þm. og hinir ágætu menn, sem þeir hafa í huga, en kinoka sjer við að nefna. Jeg trúi naumast þessari sögu um skrifarann í Skaftafellssýslu, að hann hafi annast reikningana eina, án aðstoðar sýslumanns. En hvað sem því liður, eru sýslumenn þó alt af færari til sinna starfa. Og þetta segi jeg, án þess að vilja á nokkurn hátt gera lítið úr menningu landsmanna. Þó að jeg sje enginn sýslumannavörður, þá vil jeg ekki, að alt of lítið sje úr þeim gert og þeirra lærdómi. Annars legg jeg mest upp úr vilja landsmanna sjálfra, og jeg er fullviss um, að mikill meiri hluti þeirra er á móti þessu frv.