02.05.1923
Neðri deild: 55. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í C-deild Alþingistíðinda. (2516)
4. mál, embættaskipun
Frsm. minni. hl. (Jón Þorláksson):
Jeg sagði fyrir hönd minni hlutans, að við afhentum okkar tillögu stjórninni til fósturs, en ljetum okkur svo afdrifin litlu skifta. Mjer finst aðallega tvö atriði af því, sem fram hefir komið í umr., ekki vera rökrjett, og því ástæða til að leiðrjetta þau.
Annað atriðið leiðrjetti jeg fyrir hönd meiri hlutans, þar sem hv. þm. A.-Sk. (ÞJ) telur sparnaðinn við þessa nýju embættaskipun vera 50 þús. kr., að frádregnum 10 þús. En það nær engri átt. Hann nálgast ekki þessa upphæð. Hjá stjórninni er að minsta kosti ofreiknað um 10 þús. í mismun launa nú og árið 1921. Auk þess getur ótalmargt annað komið til útgjalda, í stað þess, sem niður fellur. Að vísu hefir það ekki enn verið nákvæmlega reiknað saman, en þar fyrir má hitt ekki standa ómótmælt.
Hitt atriðið var það, sem hv. 1. þm.
Rang. (GunnS) mintist á, um yfirsóknina yfir Skaftafells- og Rangárvallasýslur, að hún væri alt of mikil. Það er satt, að hún verður mikil, og við minnihlutamenn í nefndinni sjáum vel annmarkana á þesari sameiningu, en þó verður að geta þess, að ef sýslumannssetrið verður í Vík í Mýrdal, þá verður ekki lengri leið frá sýslumanni út í fjarlægustu hluta hjeraðsins en nú er í Skaftafellssýslum, því að öll Rangárvallasýsla á skemra til Víkur en austustu hreppar Austur-Skaftafellssýslu.