26.02.1923
Neðri deild: 6. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í C-deild Alþingistíðinda. (2541)

15. mál, afnám biskupsembættisins

Forsætisráðherra (SE):

Jeg skal ekki lengja umr. En jeg get ekki neitað því, að mjer virtist hv. 4. þm. Reykv. (MJ) fara nokkuð veraldlega með sum orð mín. Aðeins nokkur atriði skal jeg nefna. Þar sem hann talaði um það, að stjórnarráðinu væri nauðsyn á kirkjulegum ráðunaut, skal jeg minna hann á það, að svipuð embætti og biskupsembættið, og þó þýðingarmeiri, hafa fyrir nokkru verið afnumin hjer, þar sem voru amtmannsembættin. Og það hefir ekki á því borið, að það yrði að neinu meini, þó sýslumennirnir standi nú beint undir stjórnarráðinu, að sínu leyti eins og prófastarnir mundu gera, ef biskupsembættið væri lagt niður. Annað atriði vildi jeg einnig leiðrjetta, það, sem sje, að vígslubiskuparnir gætu ekki eins verið andlegir forustumenn, þó þeir ættu heima í sveit. Skyldi nú sálin ekki lengur hafa nein skilyrði til að stækka annarsstaðar en í höfuðstaðnum? Þriðja atriðið, sem hann talaði um og jeg vil víkja stuttlega að, er um eftirlitið með kenningum, sem hann vildi gera lítið úr. En það er ekki til neins að neita því, að þetta er allmikilsvert atriði, sjeð með augum þjóðkirkjunnar, einkum þegar ýmsar háværar raddir fullyrða það eins og nú er, að uppi sjeu ýmsar kenningar innan kirkjunnar, sem ekki eigi þar heima. En ætli þessar kenningar verði sterkari, þó vígslubiskupinn yrði oddviti kirkjunnar? Og hvað gerir sjálfur biskupinn við þessar kenningar?

Yfirleitt virðist mjer, þegar jeg lít í huganum yfir röksemdir hv. andmælenda frv., að þær sjeu mjög veigalitlar. Þegar jeg leita að kjarnanum í þeim, þá finn jeg engan kjarna. Þeir geta ekki og hafa ekki reynt að mótmæla því, að sá litli skuggi, sem eftir er af veraldlegu valdi biskupanna, mætti hverfa, og þeir geta ekki neitað því, að þau eru þrjú biskupsembættin í landinu og aðeins eitt þeirra á að afnema, en halda hinum tveimur. Öll rök hníga því á sveif stjórnarinnar, en engin á móti.