27.02.1923
Neðri deild: 7. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í C-deild Alþingistíðinda. (2546)
16. mál, afnám landlæknisembættisins og stofnun heilbrigðisráðs
Forsætisráðherra (SE):
Þótt frv. þetta sje framborið til sparnaðar, þá er þó tilgangurinn framar öllu sá, að koma með því betra skipulagi á heilbrigðismál landsins. Skal jeg strax játa það, að vera má að áætlanirnar um sparnaðinn sjeu nokkru hærri en búast má við að raun verði á; er t. d. ekkert talað um, hvernig fara skuli með kenslu þá, sem landlæknir hefir við yfirsetukvennaskólann, en svo sýnist, sem skylda megi prófessorana til að taka það að sjer án sjerstakrar borgunar.
En jeg vil strax snúa mjer að kjarna málsins, og hann er sá, að ef sóttir eða aðra slíka vágesti ber að höndum, þá er tryggingin meiri fyrir viturlegum athöfnum, ef stjórn þeirra mála er í höndum fleiri manna en eins. Má minna á, að mjög orkaði tvímælis, hvort heppilegar hefðu verið ráðstafanir landlæknis, síðast, er innflúensan geisaði.
Stjórnin verður algerlega að fara eftir ráðum landlæknis, en öruggara ætti að vera að hafa leiðbeiningar tveggja háskólaprófessora og hjeraðslæknis við að styðjast, heldur en tillögur eins manns, sem oft og einatt kann að vera valinn í starfann af öðrum ástæðum en þeim, hve góður læknir hann er. Jeg get ímyndað mjer, að það verði margt, sem stjórnin skýtur til ráðsins, og vel má vera, að það verði unt fyrir prófessorinn, sem er formaður, að gegna fullum kenslustörfum. En þess má þó geta, að allmiklu hefir verið ljett af landlækni nú upp á síðkastið. Eftirlit með apótekum er t. d. nú hjá sjerstökum manni. Heilbrigðisskýrslur þarf hann nú að gera, en mikið starf getur það varla verið, því nýlega samdi prófessor Guðm. Hannesson heilbrigðisskýrslur fyrir 10 ár; hafði hann þó kenslustörf sín öll með landlæknisembættinu og var auk þess ekki landlæknir lengur en 13 mánuði.
Skal jeg svo ekki mæla meira með frv. að sinni, en óska, að því verði vísað til allshn. að loknum umræðum.