18.04.1923
Efri deild: 43. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í C-deild Alþingistíðinda. (2573)

14. mál, vatnsorkusérleyfi

Jónas Jónsson:

Jeg ætla mjer eigi að lengja umr. um þetta mál nú. En jeg mun við 3. umr. minnast á einstaka atriði, sem jeg álít viðsjárverð og farið hafa miður en skyldi. Það er meðal annars það, að sá liður hefir verið feldur niður, sem tekinn var frá því frv., sem lagt var til grundvallar fyrir þessu frv., um það, að ef um stærri virkjun væri að ræða, þá skyldi um það leita samþykkis tveggja þinga með kosningu á milli. Tel jeg mjög óheppilegt að minka svo skynsamlegt íhald, því íhald getur verið bæði skynsamlegt og óskynsamlegt, og er eigi nema sjálfsagt og rjett, að hið skynsamlega íhald fái að njóta sín engu síður en hin tegundin, sem meira ber á hjer í þessari hv. deild. Það leiðir af sjálfu sjer, að það er mjög óheppilegt að hindra þjóðina í því að láta uppi álit sitt um jafnstórvægilegar breytingar sem þær, ef upp kæmi iðnaðarfyrirtæki, sem notuðu meira en 50 þús. hestöfl. Yrði það slík röskun á jafnvægi atvinnuveganna, að eigi er nema eðlilegt og sjálfsagt, að þjóðin láti uppi álit sitt um það. Skal jeg svo eigi fjölyrða um þetta að sinni, en geymi athugasemdir mínar til 3. umr.