24.04.1923
Efri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 840 í C-deild Alþingistíðinda. (2591)

97. mál, vaxtakjör

Frsm. minni hl. (Björn Kristjánsson):

Eins og sjest af nál. minni hl., á þskj. 364, hefir hann ekki getað fallist á frv. þetta. Orsökin til þess er, að til eru stofnanir, sem Alþingi hefir búið til í því skyni að greiða fyrir lánum landbúnaðarins, sem sje:

Ríkisveðbankinn,

veðdeildin og

Ræktunarsjóðurinn.

Því er greinilega lýst í nál., hversu vel er auðið að nota veðdeildina í þessu skyni, og lánar hún með lægri vöxtum en 1/6 af forvöxtum bankans, ef farið er að eins og bent er á í nál., og er það eina tiltækilega lausnin á málinu í bráðina. Það er og miklu hagkvæmara fyrir Landsbankann að láta veðdeildina lána út á fasteignir og kaupa veðdeildarbrjefin með litlum afföllum af lántakendum en að lána sjálfur út á fasteignirnar, með lágum vöxtum, eins og frv. ætlast til. Og engin lög þarf að setja um, að Landsbankinn láni út á fasteignir með lægri vöxtum; reglugerð bankans heimilar það og setur engin skilyrði fyrir því, hvaða vexti skuli setja á. Um þetta þarf engin lög, og það, sem hin rökstudda dagskrá ætlast til, er nægilegt. En að það sje hagkvæmara að láta veðdeildina lána út á fasteignir, en ekki Landsbankann sjálfan, liggur í því, að veðdeildarbrjefin getur hann selt, og svo geta þau líka dregist inn, og þá fær bankinn peninga sína aftur. Síðan getur hann notað það af veðdeildarbrjefunum, sem hann getur ekki komið fljótlega í peninga, sem veð fyrir láni. En skuldabrjef einstaklinga getur hann ekki notað á þennan hátt. Það er því augljóst, að þetta er eina leiðin, sem fær er, til þess að bæta úr fjárkreppu þeirri, sem frv. hygst að bæta úr. Og vilji menn bæta úr lánsþörf landbúnaðarins sjerstaklega, þá má það ske með því móti að breyta lögunum um ríkisveðbanka í þá átt, að hann verði einungis banki fyrir landbúnaðinn — og verulegra breytinga þurfa þau lög við áður en þau eru notuð — og væri þá nægilegt að leggja fram sem tryggingarfje Ræktunarsjóðinn, til að byrja með. En þá yrði að leggja honum til rekstrarfje, alt að 2 miljónum króna. En enginn getur búist við því, að sá banki gæti lánað með lægri vöxtum en veðdeildin getur gert, nema honum sje beint gefið rekstrarfjeð.

Þá er ein leið, sem jeg benti greinilega á við umræðurnar um Ríkisveðbankann 1921, en hún er, að stofna lánsfjelag (Kreditforening) fyrir landbúnaðinn á sama hátt og Danir og aðrar þjóðir hafa gert. Það er langbesta leiðin, ef tiltök eiga að vera til þess að koma verðbrjefum fjelagsins á útlendan markað. (SJ: Sem þau eiginlega ekki geta komist samt sem áður). Jeg óska, að menn sjeu ekki að áreita mig, og jeg vona, að það sje jeg, sem hefi orðið. (SJ: Má ekki gefa skýringu?). Jeg kem með mínar skýringar fyrst, háttv. þm. getur gefið sínar á eftir.

Þegar Claessen bankastjóri kom úr utanför sinni í desember síðastliðnum, skýrði hann Morgunblaðinu 6. janúar frá, að hann hefði verið að kynna sjer, hvernig best væri að koma fyrir landbúnaðarlánum hjer á landi. Eru þessi orð höfð þar eftir Claessen, er hann var að lýsa rekstrarlántöku sinni. Með leyfi hæstv. forseta ætla jeg að hafa þau orðrjett yfir:

„Þessi lán (þ. e. rekstrarlán þau, sem tókst að útvega) ættu að geta trygt nægilegt rekstrarfje verslunar- og framleiðslufyrirtækja landsmanna, sem nú verða að vera rekin þannig, að þau geti endurgreitt rekstrarlánsfjeð árlega. En þau bæta ekki úr þeirri brýnu þörf, sem á því er, að útvega landsmönnum löng fasteignalán. Til þess þarf að vera mögulegt að selja utanlands veðdeildarbrjef okkar. En jeg hefi við nokkra athugun á því máli og rannsókn meðal erlendra fjármálamanna komist að þeirri niðurstöðu, að vænlegasta ráðið fyrir okkur sje að snúa okkur að stofnun lánsfjelaga (Kredit-foreninger) eftir danskri fyrirmynd. Danir hafa ágætan markað fyrir slík verðbrjef.“

Þetta kemur alveg heim við það, sem jeg hjelt fram á þinginu 1921, þó að menn gætu þá ekki notfært sjer þá bendingu. En vitanlega tekur það nokkurn tíma að koma því fyrirkomulagi á, og þess vegna verður að nota veðdeildina fyrst um sinn til landbúnaðarlána. Slíkt lánsfjelag mundi lítils stuðnings þurfa við frá hálfu ríkissjóðs. Eins mætti búast við, að brjef slíks lánsfjelags seldust mikið innanlands, og mest allra verðbrjefa, en það liggur í því, að hver jarðeigandi í landinu mundi sjá sinn eigin hag í því að koma verðbrjefum þessum út. Stofnunin hefði því alla jarðeigendur sem sjálfkjörna „agenta“ eða umboðsmenn til að selja brjefin.

Á þessari hugsun er dagskráin bygð, sem minni hl. ber fram, og væntir minni hl., að hv. þingdeildarmenn samþykki hana, og einmitt þeir, sem bera sjerstaka umhyggju fyrir landbúnaðinum. Eins og hv. deildarmenn sjá, er þetta stuttorðaður kjarni málsins, og auðvitað dettur mjer ekki í hug að fara að deila um þetta mál, eða að fara að svara aukaatriðum, sem ekki geta raskað grundvelli þeim, er dagskráin byggist á. Jeg sje að vísu, að komin er fram brtt. við frv. þetta, og er hún til lögunar á því, en hún gerir samt engan verulegan mun. Frv. er eftir sem áður hvorki heilt nje hálft. Það er í mínum augum ekki annað en mjög óhönduglega orðuð fyrsta grein í miklu lengra frv. um þessi efni. Þar liggur engin þekking að baki, hvorki á bankamálum nje öðrum fjármálum, en því var heldur ekki við að búast.

Þá skal jeg víkja með örfáum orðum að athugasemdum hv. frsm. meiri hl. (KE). Jeg skal taka það fram, að jeg er honum sammála, hvað snertir nauðsynina á að styrkja landbúnaðinn, en einmitt það gerir enginn í deildinni betur en við, minni hl. Jeg vildi ekki ræða mikið um afstöðu Íslandsbanka, en tel þó helst, að frv. gæti átt við hann, þrátt fyrir minni hl. álitið. En jeg mun láta lögfræðingana þrátta um það atriði, því að sjálfur er jeg enginn lögfræðingur. Hv. frsm. meiri hl. (KE) vildi ekki viðurkenna það, sem stendur í nál. okkar um, að það væri erfitt fyrir bankann að vita með vissu, til hvers lánsfjenu væri varið. Það er vitanlega hægara, þegar um sjerstæðar stofnanir er að ræða, Fiskiveiðasjóð eða Ræktunarsjóð, þangað leita ekki aðrir en þeir, sem rjett eiga á að fá lán úr slíkum sjóðum. En þar sem Landsbankinn verslar með alt og hefir á hendi alla venjulega bankastarfsemi, þá veitir hann líka allskonar lán, eins og tekið er fram í nál., þvert á móti því, sem

hinir sjóðirnir gera. Hv. frsm. meiri hl.

(KE) sagði, að það væri eðlilegt, að brjefin hefðu árlega fallið. Af eðlilegri ástæðu fjellu þau ekki á árunum 1900 —1918, því að þau höfðu innlendan „kurs“. Það hefir reynst vel, svo að engin einstök stjett hefir haft ástæðu til að kvarta.

Það er alveg ný upplýsing, sem hv. frsm. (KE) gaf, að ofmikið væri í umferð af seðlum; jeg veit ekki, hvort það muni vera rjett, en jeg trúi því tæplega. Nú, en ef svo er, þá verður að grípa til nýrra ráðstafana og takmarka seðlaútgáfuna betur. Annars sje jeg ekki ástæðu til að fara nánara út í það, sem hv. frsm. (KE) sagði í ræðu sinni.