24.04.1923
Efri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 845 í C-deild Alþingistíðinda. (2592)
97. mál, vaxtakjör
Atvinnumálaráðherra (KIJ):
Þegar frv. þetta kom fyrst fram, fundust mjer aðallega tveir annmarkar vera á því, annar sá, að miða vaxtalækkun eingöngu við hag landbúnaðarins, en hinn sá, að vaxtalækkunin skyldi reiknast út sem viss hluti af hærri vöxtunum, því það er óeðlilegur og erfiður vaxtareikningur. Jeg fann ekki ástæðu til að undanskilja sjávarútveginn, einkum bátaútveginn, og bægja honum frá þessum góðu vaxtakjörum, ef þau fengjust. Meiri hluti nefndarinnar hefir nú reynt til að lagfæra hvorttveggja þetta með brtt. á þgsk. 363, því sje felt burt orðið ,landbúnaðarins, þá verður það að skiljast svo, að það eigi ekki einungis við landbúnaðinn eða atvinnurekendur í sveit, heldur líka við þá, sem reka sjávarútveg, einkum í minni stíl. Hv. frsm. minni hl. (BK) tók fram, að engin lög þyrfti að setja um að Landsbankinn lánaði út á fasteignir með lægri vöxtum en vanalega gerist, því að það væri heimilað í Landsbankalögunum, en tók þó fram um leið, að vöxtum hljóti bankastjórnin að ráða. Það getur verið, að heimildin sje til í bankalögunum, en hún er þá áreiðanlega ekki notuð, og mundi þá sjerstök heimild, sem felst í þessu lagafrv., vafalaust ýta við bankastjórunum.
Annars var veðdeildin aðallega stofnuð til þess að styrkja landbúnaðinn, og veðdeildarlánin hafa gefist vel og eru vel þokkuð. Úr því að jeg mintist á veðdeildiha, vil jeg leiðrjetta lítilsháttar misskilning hjá hv. frsm. minni hl.(BK), þar sem hann sagði, að próf. Eiríkur Briem hafi átt hugmyndina að henni, en það var ekki hann, heldur Páll sálugi amtmaður Briem. Álits amtmanna var leitað í þessum efnum, og sendi Páll þá rökstuddar tillögur, er svo voru samþyktar á Alþingi, að efni til víst að mestu óbreyttar. Jeg vildi aðeins geta þessa, en það gerir auðvitað hvorki til nje frá.
Að því er Íslandsbanka snertir, þá verð jeg að vera minni hl. sammála um, að þingið hafi enga heimild til að skipa fyrir um vexti þess banka, og meira að segja vafasamt, hvort bankaráðið sjálft hafi slíkan rjett. Því jeg veit ekki betur en sumir bankaráðsmennirnir hafi talið sig bresta heimild til að fyrirskipa nokkuð um þetta efni. Það mun því vera rjett hjá minni hlutanum, að þetta nái ekki til Íslandsbanka. En þar sem því er bætt við í nál. minni hlutans, að úr því frv. þetta nái ekki til Íslandsbanka, þá sje þar með meginstoðinni kipt undan tilgangi frv., þá get jeg á engan hátt verið því sammála. Íslandsbanki hefir aldrei verið stoð landbúnaðarins á Íslandi. Hann fekk hjer á árunum leyfi til þess að gefa út eina miljón af bankavaxtabrjefum með því skilyrði, að mig minnir, að henni yrði varið til lána í þarfir landbúnaðarins. Og nú mun ekki vera meira en svo sem 7–8 hundruð þúsund krónur í útlánum til landbúnaðarins. Þá er sagt í nál. minni hl., að veðdeildarbrjef Landsbankans hafi reynst óseljanleg í útlöndum, nema lítið eitt af I. flokki. Það er sjálfsagt rjett. Jeg veit ekki hvort gerðar hafa verið alvarlegar tilraunir af Landbankans hálfu í þá átt næstu árin fyrir stríðið, en nú er það ómögulegt. En jeg man eftir, að einhverntíma á árunum 1906–7 fór Schou bankastjóri Íslandsbanka til Danmerkur og seldi þá talvert af bankavaxtabrjefum Landsbankans, einkum sparisjóðum, sem notuðu brjefin sem tryggingarfje. Þá er þess getið í nál. minni hl. að Landsbankinn eigi nú í sjóði með innieign sinni í Íslandsbanka rúmar 4 miljónir króna, og sje það nóg til að halda veðdeildinni starfandi eins og áður. Svo er borin saman sparisjóðseign og veðdeildarbrjefaeign á árunum 1914– 1921. En það er ekki nóg. Samanburðurinn verður ekki nákvæmur, nema það sjáist líka, hve mikil veðdeildarlán hafi verið veitt þessi ár. Jeg hefi leitað upplýsinga um það hjá forstjórum Landsbankans, og er skýrsla sú svohljóðandi:
1914 veitt 399,700,00
1915 — 134,100,00
1916 — 157,800,00
1917 — 595,000,00
1918 — 417,400,00
1919 — 357,800,00
1920 — 517,500,00
1921 — 279,400,00
1922 — 317,300,00
Þetta eru ekki litlar upphæðir, og sýna, að þessi árin hefir verið lánað mikið á þennan hátt.
Jeg vil taka það fram að endingu, að þótt jeg álíti, að frv. þetta komi ekki fullkomlega að gagni, þá geti þó orðið talsverð not að því, og ekki beri að fella það alveg. En þessi rökstudda dagskrá minni hlutans kemur ekki að fullkomnum notum. Það er ekki von, að stjórn Landsbankans tæki því vel, að ríkisstjórnin færi að fyrirskipa henni að kaupa veðdeildarbrjefin yfir „pari“. Ef afföllin eru meiri en 6%, er ekki von að Landsbankastjómin vilji hlýða slíkum fyrirskipunum. Ef deildinni er alvara með að gera eitthvað, sem hefir áhrif á landbúnaðinn, þá hefði dagskráin átt að vera öðru vísi, t. a. m. á þá leið að skora á Landsbankann að veita fyrirhuguðum ríkisveðbanka hæfilegt rekstrarlán. Þessi banki á að vera eingöngu landbúnaðarbanki. Hann er ekki kominn á stofn enn, vantar rekstrarfje. Ef deildin er sannfærð um, að þetta litla frv. geri ekki gagn, þá hefði hún átt að skora á stjórnina að veita þessum fyrirhugaða ríkisveðbanka lán með sæmilegum kjörum. Íslandsbanka hefir verið lánað töluvert fje, og ætti því ekki síður að lána þessum banka og styrkja með því landbúnaðinn. Jeg skýt þessu til nefndarinnar, ef frv. nær ekki fram að ganga, að þá verði dagskránni breytt.