24.04.1923
Efri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í C-deild Alþingistíðinda. (2598)
97. mál, vaxtakjör
Frsm. minni. hl. (Björn Kristjánsson):
Það er sáralítið, sem jeg vildi segja. Jeg skýrði skorinort frá skoðun minni á þessu máli, og finst því algerður óþarfi að vera að tala um, að mörg atriði í ræðu minni hafi verið óljós. Hv. 5. landsk. þm. (JJ) sagði, að mjer væri ekki ljóst fyrirkomulag „Kreditforeninganna“ dönsku, en það eru mörg ár síðan jeg kynti mjer það fyrirkomulag og las lög viðvíkjandi þessum lánsfjelögum. Jeg hefi oft átt kost á að kynna mjer þau nákvæmlega, svo það er alveg út í bláinn sagt hjá hv. 5. landsk þm. (JJ), að jeg hefði óljósa hugmynd um þeirra fyrirkomulag og starf.
Það kemur lítið þessu máli við, þótt hv. 5. landsk. þm. (JJ) hafi komið því af stað, að mjer yrði stefnt og af mjer krafist 500 þús. kr. í skaðabætur. Jeg finn enga ástæðu til að svara því einu orði. En út af því langaði mig til að spyrja, hvort ekki sje rjett, að rjettarstefnan sje birt, svo að jeg fái að vita, hvað á mig er borið, og geti fengið tíma til að verja hendur mínar. Hún er nú búin að liggja niðri í fullar þrjár vikur eða mánuð, svo að menn hafa ástæðu til að halda, að hún eigi aðeins að vera flagg við kosningarnar, en að málshefjendur sjeu ekki vissari í sinni sök en svo, að þeir þori ekki að eiga á hættu að láta dóminn falla, fyr en kosningar eru um garð gengnar. Það er bara þetta, sem jeg gjarnan vildi vita, hvort málshöfðun þessi á aðeins að vera kosningaflagg eða alvara.