28.04.1923
Efri deild: 50. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í C-deild Alþingistíðinda. (2605)

97. mál, vaxtakjör

Frsm. minni hl. (Björn Kristjánsson):

Þetta frv. liggur nú fyrir í þeirri mynd, sem hv. deild skildi við það síðast, og í þessari mynd virðist nú eiga að samþykkja það, til hagsmuna fyrir jarðeigendur.

Þó hv. deild feldi dagskrá minni hluta fjhn. við síðustu umræðu, þá var hún þó eina hugsanlega lausnin á málinu, bæði fyrir bankann sjálfan og lántakendur. Eins og jeg bjóst við og tók fram síðast, mun bankinn verða ófúsari á að veita bankalán með 1% undir venjulegum vöxtum en að veita veðdeildarlán og kaupa brjefin á 94%.

Eins og jeg benti á, gat hann búist við að fá það fje nokkuð bráðlega aftur við sölu brjefanna og inndrátt þeirra. Og í öllu falli gat hann notað veðdeildarbrjefin sem tryggingu erlendis, ef hann þurfi á láni að halda. Láni hann nú beint úr bankanum, fær hann ekki peningana aftur fyr en jafnótt og hann fær lánin greidd. Og hann getur ekki notað slík skuldabrjef sem veð erlendis. Honum er því í öllu tilliti óhagur að því að veita slík lán í stað þess að veita veðdeildarlán, sem minni hl. lagði til. Og hvernig verða svo lántakendurnir settir eftir þessu frv.? Í fyrsta lagi er það, að þeir taka lán í bankanum, ef þeir annars fá þau, með fult eins háum vöxtum og veðdeildarlán. Í öðru lagi fá þeir lánin í hæsta lagi til 10 ára í aðalbankanum og í útibúunum til 1 árs, samkvæmt reglugerð bankans, í staðinn fyrir 25–35 ár, ef veðið er húsveð, og til 40 ára, ef veðið er jarðarveð. Og í þriðja lagi hafa lántakendur minni von um að geta fengið nokkur veruleg lán úr bankanum, af því að honum er það meiri óhagur. Jeg þarf ekki að endurtaka, að ef frumvarp þetta verður að lögum, þá höfum við tvenn lög um sama efni. Því að þessi skipun, um að lána með lægri vöxtum út á fasteign, er þýðingarlaus, þegar ekki er tiltekin minsta upphæð, sem bankinn á að lána á ári. Jeg geri ekki ráð fyrir því, að nokkur hv. þm. haldi því fram í alvöru, að bankastjórn Landsbankans hafi ekki vald til þess að ákveða útlánsvexti bankans. Það vald er henni veitt í 8. gr. reglugerðar bankans frá 18. okt. 1911, enda hefir bankastjórnin altaf haft það vald, meira að segja útibússtjórar, sem stundum hafa t. d. tekið hærri vexti en Landsbankinn.

Það er reyndar aukaatriði að geta þess, að tekið er fram í frv., að lántakandi njóti þessara lægri vaxta, ef hann aðeins setur fasteignarveð, án tillits til þess, hvort lánið er veitt með 1. eða 2. veðrjetti. En samkvæmt reglugerð bankans, 11. gr., má hann lána út á 2. veðrjett, ef sjerstakar ástæður mæla með. Sá maður, sem fær lán út á 2. veðrjett, á heimting á að fá lágu vextina samkvæmt frv. Mjer hefir þótt rjett að gefa þessa stuttu skýringu, til þess að gera skyldu mína, en mjer er vitanlega sama, hvort þetta frv. verður samþykt eða ekki.

En auðvitað verður það þýðingarlaust, sem við er að búast. Meiri hluti nefndarinnar á hjer brtt. á þskj. 463, og kemur með hana eftir að hann hefir borið sig saman við bankastjórn Landsbankans. Fyrri breytingin, að á undan 1% komi „alt að“ sýnir, að það er rjett, sem jeg hefi haldið fram, að bankastjórninni muni vera óljúft að veita fasteignalán úr bankanum sjálfum, og breytingin gerir frv. að enn meira pappírsgagni. Viðbótartillagan er og þýðingarlítil, því að fæst bæjar- og sveitarfjelög munu nú hafa nokkrar fasteignir að veðsetja; þau eru búin að veðsetja þær allar; svo þetta gerir hvorki til nje frá. Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál.