24.04.1923
Neðri deild: 49. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í C-deild Alþingistíðinda. (2622)

67. mál, mannanöfn

Sveinn Ólafsson:

Jeg stend upp í þetta sinn af því að jeg er hlyntur þessu frv. og vil leggja því liðsyrði, þótt ekki geti jeg felt mig við það óbreytt. Háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ) hefir stungið upp já því, að frv. verði vísað til mentmn. Jeg tel líka sjálfsagt að vísa því til nefndar, þó ef til vill af nokkuð öðrum ástæðum en hann. En mjer hefir dottið í hug, að rjettara myndi, ef til vill, að láta það fremur ganga til allshn. heldur en mentmn., sem jeg hefi nokkra ástæðu til að ætla, að sje því síður hlynt.

Það eru ýmsar gr. frv. svo lagaðar, að mjer finst ekki rjett að lögfesta þær eins og þær eru. Væri rjettara að láta nefnd athuga þær og koma fram með brtt. við frv. T. d. skal jeg taka 4. gr. frv. Jeg veit ekki til þess, að í lögum sje neinn stafur um viðurnefni og nafnfesti þá, sem þar ræðir um, og mætti því vel svo fara, ef ekki er ákveðið neitt nánar um þetta, að það yrði misbrúkað. Þá getur mjög orkað tvímæhs, hvort rjett sje að lögfesta 8. gr., svo mjög, sem hún virðist ganga nærri rjetti þeirra manna hjer á landi, sem ekki eru íslenskir þegnar, en njóta þó sama rjettar og innlendir menn, svo og einnig þeirra erlendu manna, sem hafa vilja hjer landsvist um lengri eða skemri tíma. Sama máli er að gegna um 10. gr. frv. Þar virðist mjer tekið of djúpt í árinni um sektarákvæðin fyrir að nota fornhelg heiti, svo sem ásanöfn. Væri rjettara að hefla gr. lítið eitt, og myndi hún koma að fullu gagni, þótt sektarákvæðin væru lægri.

Jeg endurtek það svo, að það er sökum þess, að mjer er ant um þetta mál, að jeg styð það á þennan veg. Jeg tel sigurvænlegustu leiðina fyrir það að láta það ganga til nefndar, en mjer er í rauninni ekkert kappsmál, hver nefndin það verður, sem um það fjallar, þótt jeg telji allshn. standa næst að fara með það.