05.03.1923
Neðri deild: 12. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í C-deild Alþingistíðinda. (2641)

46. mál, hlutfallskosningar

Flm. (Magnús Jónsson):

Jeg skal lofa hinni háttv. deild því að tefja hana eigi lengi. Það, sem þetta frv. ræðir um, mun eigi verða talið til stórmálanna, er fyrir þessu þingi liggja.

Flestir, er hafa verið við upptalningu atkvæða eftir hlutfallskosningar — og háttv. þingmenn hafa meðal annars heyrt slíkan upplestur hjer inni — hafa sjálfsagt veitt því eftirtekt, hversu óheppilegt það er að merkja listana með fyrstu bókstöfum í stafrófinu sökum hljóðlíkinga, sjerstaklega stafanna B — C — D og E. Þegar einhver af þessum stöfum er kallaður upp, er mönnum oft ómögulegt að heyra, hver þeirra það er. Menn eru því sífelt að hvá, og enda þótt leiðrjett sje, vita menn eigi með vissu, hvort verið er að leiðrjetta, eða kalla upp nýtt atkvæði.

Úr þessum galla er auðsætt að bæta, með því að nefna listana með tölustöfum. Hvort heldur kallað er upp: einn, tveir, þrír, eða fyrsti, annar, þriðji o. s. frv., þá er engin hætta á, að áheyrendur ruglist á því.

A, B, C, o. s. frv. er að vísu handhæg nöfn á listum, en það er ekki sá kostur, að taki að vera að halda í bókstafina þess vegna, enda verða tölustafirnir sjálfsagt munntamir strax við venjuna.

Jeg orðlengi þetta ekki meir, en óska, að hv. deild vísi frv. til 2. umr. og síðan í nefnd, og þá sjálfsagt allsherjarnefnd.