09.03.1923
Neðri deild: 16. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í C-deild Alþingistíðinda. (2645)
47. mál, stofnun sjóðs til eflingar bindindisstarfsemi
Flm. (Magnús Jónsson):
Þegar þingið í fyrra gekk undir þá nauðungarkosti að samþykkja undanþágu frá lögum um aðflutningsbann á áfengi, þá mun það hafa verið ástæðan hjá flestum, og mig langar til að segja hjá öllum þeim hv. þm., sem þá breytingu samþyktu, að það væri gert vegna svo brýnnar þarfar landsins og þjóðarinnar, að einskis annars væri kostur. Að öðrum kosti hefði slíku tilræði við bannhugsjónina verið vísað frá þinginu með þegjandi fyrirlitningu, af miklum meiri hluta þingmanna.
Jafnframt mun það og hafa verið ríkt í huga margra, að í þessu máli yrði það að koma sem skýrast fram, að þetta væri gert sakir lífsnauðsynja atvinnuveganna, en ekki fyrir þær sakir, að bannmenn væri nú farið að muna í þær krónur, sem ná mætti inn í ríkissjóðinn með því að hleypa víninu inn í landið.
Bannmenn hafa verið og eru bannmenn af þeirri ástæðu, að þeir hafa sjeð og skilið, að það er illa og heimskulega fengið fje, sem með þeim hætti er tekið í ríkissjóð, ef það er gert af þeim ástæðum einum. Bannmönnum hefir ekki skilist og skilst aldrei, að þeir, sem borga toll í ríkissjóð fyrir að fá vín, gætu ekki borgað þær krónur eins vel, án þess að kosta upp á vínið, og án þess að vera miður starfhæfir vegna áhrifa þess. En á þinginu í fyrra var lítið ráðrúm til þess að gera nokkrar frekari ráðstafanir í þessu skyni, því áliðið var þingtímans, þegar þessu máli var lokið, enda þá máske hjá sumum einhver vonarskíma, að úr þessu kynni að rætast eitthvað á þeim árstíma, sem framundan var og frestur var gefinn um fullnaðarúrslit. Einhverjir gátu hafa gert sjer vonir um, að vinir vorir og samherjar í hinum voldugu löndum mundu geta greitt eitthvað vörnina, sem okkur var búin. Eða að annað skipaðist svo á árinu, að við þyrftum ekki undir ókjörin að ganga, og þá ekki heldur að gera neinar ráðstafanir þessu viðvíkjandi. En nú er útlitið, því miður, ekki bjart í þessu efni. Annað mun og hafa verið allríkt í huga þeirra, sem bannstefnunni voru hlyntir, þó að þeir yrðu að leika hana svo hart, og það er, að eftir því sem unt væri, skyldu þeir reyna að bæta henni það upp, sem nú væri frá henni tekið. Að vísu hljóta bannmenn að halda því fram, að bannið verði ekki bætt upp nema með ítrekuðu banni, annars hefðu þeir ekki stefnt að því, svo fast sem þeir gerðu. En svo fast mega menn aldrei blína á einn og sama staðinn, að þeir stari sig blinda á alt annað. Og það er ljelegur háseti, sem leggur árar með öllu í bát, ef hann hrekur frá þeim stöðvum, sem hann helst vildi ná, og lætur reka aðgerðarlaust beint í brimgarð og boðaföll, án þess að hafast að. Nei, ef ekki það besta, þá það næstbesta; svo verður hver þrautseigur bardagamaður að hugsa. Og svo mun og vera um flesta bann- og bindindisvini á landinu.
Enda þótt það kunni að fljúga í huga einhvers, að úr því, sem komið er, sje best að henda öllu frá sjer, þá má ekki fallast á slíkt fljótræði og óvit, og sannir vinir þessarar hugsjónar geta það ekki. Þeir geta ekki hent hugsjóninni sjálfri frá sjer fyrir það, að eitt vopnið til varnar henni hefir verið slegið úr höndum þeim.
Nei, nú er að gera við því sem er, nú er að hefjast handa á því stigi, sem málið er. Það er málinu vissulega gagnlegra en að standa auðum höndum og æpa: hefði, hefði!, sem hjeðan af stoðar ekki baun.
En hvernig getum við nú sameinað þetta tvent: annars vegar að sýna, að við höfum ekki afnumið bannlögin til þess að taka fje fyrir sæmd okkar, og hins vegar að styðja þann málstað, sem hjer hefir orðið svo harkalega fyrir rás viðburðanna?
Það er þetta tvent, sem við hv. þm. Borgf. (PO) og jeg, höfum viljað sameina með þessu frv., sem nú liggur fyrir. Með því að verja ágóðanum af vínverslun ríkisins og sömuleiðis því, sem aðrir greiða fyrir að fá að versla með vín, til þess málefnis, er því lýst skýrt og skorinort yfir, að ef ríkissjóður þarf á fje að halda til almennra þarfa, þá vilji hann miklu heldur fara aðrar leiðir til þess að afla sjer tekna þeirra, sem hann þarf. Og að því megi af þeim ástæðum, hvenær sem er, setja bannlögin í samt lag aftur. Og á hinn bóginn fæst með þessu allmikið fje til þess að starfa að því málefni, sem nú stendur höllum fæti, vegna þessara tilneyddu ráðstafana. Skal jeg fyrst líta ofurlítið á það, sem jeg nú nefndi fyr. Eins og alkunnugt er, hefir það jafnan verið einn örðugasti hjallinn fyrir bannið í hverju landi, að það hefir verið talið erfitt að bæta ríkissjóðnum upp það tap, sem hann verður fyrir við að missa tekjur sínar af víninu. Hjer á landi var það líkan jafnan ein sterkasta röksemdin á móti banninu áður en það komst á. Og það má eiga það vist, að verði ríkissjóður látinn fá stórgróða af áfengisversluninni, þá myndast þar þungur straumur gegn því að setja bannið á aftur fyrir fult og alt, þegar sá tími rennur upp, að það er gerlegt vegna sambanda vorra úti um heim. En sje á hinn bóginn gróða af vínversluninni varið einmitt í þágu þessa málefnis, þá er engin hætta á að það verði þröskuldur í vegi bannsins, því að bannmenn munu jafnan skilja, að það er málefninu gróði að losna við þær tekjur, sem af vínverslun og vínnautn leiða.
En þá kynni nú einhver að segja: því á þá ekki að leggja allan ágóða af víninnflutningnum, einnig víntollinn, í þennan sjóð, sem á að starfa fyrir bindindis- og bannmálefnin? Já, því ekki? Jeg vil ekki segja, að það mundi vera svo fjarri vilja okkar flm. frv. En við erum ekki einráðir um þetta mál. Við vitum mæta vel, að hjer, sem annarsstaðar, er vænlegast til sigurs að lenda hvorki í Skyllu nje Karybdis, lenda í hvorugum öfgunum, því að þá er alt tapað.
Jeg sje, að útbýtt hefir verið hjer í háttv. deild frv. frá hv. 5. landsk. þm. (JJ) um svipað efni og þetta frv. okkar, og þar er það sama uppi á teningnum. Hann treystir sjer ekki að leggja til, að varið verði nema litlum hluta fjárins til bindindismálsins, þó að hann vilji festa alt fjeð, bæði tolla og annan ágóða af víninnflutningnum. Við förum þessa leið af því, að hún sýnist svo sanngjörn, og skal nú sýna fram á það.
Meðan bannið stóð með fullum krafti hafði ríkissjóður talsvert miklar tolltekjur af innfluttum vínum. Að sjálfsögðu aukast þær tolltekjur eitthvað við það, að undanþágan er veitt, en þó má hafa það í hendi sjer, og þingið getur jafnan ráðið því máli eftir vild sinni. Hjer er því um tekjulið að ræða, sem kominn er frá bannlagatímanum, tekjulið, sem kemur inn í áætlun og reikninga ríkissjóðs, svo að ef ætti að kippa honum burt, þá væri það alveg sama sem að fara fram á jafnháa fjárveiting og þessu nemur, og það vorum við flm. hræddir um að eigi yrði litið hýru auga á þessum tímum, og að sumu leyti ekki að orsakalausu, þegar verið er að leita með logandi ljósi að einhverjum liðum, sem hægt væri að spara á. En svo er það annar liður, og hann er nýr. Hann er ekki kominn inn í neina fjárhagsáætlun, og því siður orðinn að neinum máttarvið í fjárhagsbyggingunni. Og það er ágóðinn af vínversluninni. Að vísu mun nú svo til ætlast á pappírnum, að hann sje enginn, af því að vínversluninni hefir ekki verið kipt út úr lyfjaversluninni. En samt er nú sagt, að ágóði hafi orðið af vínversluninni, enda sýnist lítil ástæða vera til þess að halda því fyrirkomulagi, að þótt ekki megi græða á lyfjaverslun, þá megi ekki græða á ólyfjan. Það ætti ekki að vera jafnnauðsynlegt hvorttveggja fyrir fólkið.
Hvað mikið af tekjunum af víninnflutningnum sje tollur, og hvað mikið ágóði, er auðvitað á valdi þingsins. Því að það er í raun og veru ekki annað en nöfn. Og yrði þetta frv. að lögum, væri sjálfsagt að ákveða það eða áætla. Að minni skoðun ætti tollinum að vera hagað svo, að ríkissjóður hefði nokkurnveginn þær tekjur, sem hann hefir haft af víninnflutningnum, svo að það þyrfti ekki að valda neinum ruglingi. En hitt ætti að takast sem ágóði af versluninni, og renna í sjóðinn. Væri þá alveg trygt, að tekjur ríkissjóðs af vínsölu yrðu ekki þrándur í götu bannsins, og fært væri að endurreisa það aftur.
Þá kemur hitt atriðið, um sjálfan sjóðinn og hvernig honum skuli varið. Eftir því, sem mjer hefir verið sagt, er þetta ekkert einsdæmi hjer, þótt svona væri að farið, því bæði Finnar og Svíar hafa varið vínágóða sínum í þágu bindindis og banns, og orðið að stórmiklu liði. Mjer var þetta að vísu eigi kunnugt, þegar frv. varð til, en hefir verið sagt það síðar, og spillir það eigi að hafa góð fordæmi fyrir sjer, enda þótt jeg hefði verið því jafnfylgjandi án þess.
Sjóðnum á, eftir frv., að verja „til eflingar bindindisstarfsemi í landinu, og verndar áfengislöggjöf landsins.“ Við flm. hugsum okkur, að þetta sje tekið í víðtækustu merkingu orðanna.
Efling bindindisstarfsemi er eigi einungis það að fara um og stofna bindindisfjelög og stúkur, heldur hverskonar fræðsla um áhrif víns og afleiðingar, og alt, sem getur stuðlað að því, að menn gæti sín fyrir því að falla fyrir áfengishættunni. Ætti öllum að vera það vel ljóst, hvort sem þeir eru bannmenn eða ekki, að slík fræðsla er þörf og nauðsynleg, og að það miðar til þjóðþrifa að hvetja menn til varfærni og bindindisstarfsemi.
Hitt ákvæði frv., um vernd á áfengislöggjöf landsins, er þó enn þá miklu yfirgripsmeira. Með því er alls ekki eingöngu átt við beina löggæslu, enda þótt hún sje nauðsynleg, og hún töluvert öruggari og fastari en verið hefir. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hve framkvæmd bannlaganna hefir verið ábótavant, þó að bannlögin hafi raunar ekki verið nándarnærri eins mikil undantekning í því efni eins og oft hefir verið látið klingja. En þó má eiga víst, að í skjóli ljettu vínanna verði hin sterkari vín, sem eru bönnuð, enn áleitnari og erfiðari viðfangs en áður. Sömuleiðis þarf og að hafa gætur á öðrum lögum og ákvæðum um sölu og veitingar á vínum í landinu, að eftir þeim sje farið, því pappírslögin eru svo gróflega gagnslítil ein, ef ekki stendur vald á bak við. En þetta, þessi löggæsla öll, er alls ekki það eina, sem átt er við með vernd áfengislöggjafarinnar. Undir þann lið heyrir einnig það, að losna úr því öngþveiti, sem við erum nýkomnir í, að mega ekki haga okkar eigin lögum í þessu efni eins og við viljum. Af fje þessa sjóðs er ætlast til, að kosta megi víðtæka starfsemi og ötula í þá átt að losa oss undan valdi þeirra, er nú hafa náð oss í kreppu. En það verður að gerast bæði með því að vinna sem ósleitilegast að því að gera okkur óháðari spanska fiskimarkaðinum, og einnig með því að stuðla að alþjóðasamvinnu gegn kúgun vínþjóðanna á þeim, sem losna vilja við vínið.
Jeg býst við, að öllum hljóti að koma saman um, að þetta sje ekki einungis bannmanna málstaður, heldur allra góðra manna málstaður. Það hlýtur hverjum manni að renna blóðið til skyldunnar, þegar erlend þjóð notar bolmagn sitt svo illa og hrapallega gegn oss eins og Spánverjar hafa nú gert, og undan því hljóta allir að vilja losna. Og þá ætti og öllum að koma saman um, að fleiri markaða þurfi að leifa fyrir fiskframleiðsluna. Það er eigi í þeim tilgangi gert að segja skilið við spanska markaðinn, því að ef við ættum aðra markaði, sem gerðu oss mögulegt að hafna þeim spanska, án þess að fara á höfuðið, þá kæmi aldrei til þess. Þá væri afleiðingin eðlilega sú ein, að Spánverjar hefðu misttök sín aftur.
Okkur fanst rjett og sjálfsagt, að Stórstúkan hefði tillögurjett um það, hvernig sjóði þessum verður varið. Því hún er öllum þessum málum kunnugust og hefir best vit á, hvað bindindismálinu er fyrir bestu. Hún kemur og fram sem æðsti fulltrúi þeirra, er lagt hafa fram mesta vinnuna við þetta mál.
Jeg vonast nú til, að jeg þurfi ekki að fara mikið fleiri orðum um þetta. Alþingi hefir oft sýnt það, að það hefir viljað meta starfsemi bindindismanna. Jeg vil að minsta kosti gera það, þótt jeg sje ekki sjálfur í þeim fjelagsskap, sem mest hefir starfað að þessu máli, og svo mun um fleiri vera. Og ekki ætti þessu þingi, sem hefir orðið að ganga svo mikið á aðra braut í bannmálinu en það hefði viljað, að vera vanhugað um þennan málstað, að efla hann og styðja. Mætti í því sambandi á það minna, þó að jeg vilji engan veginn vera að dásama slíkt, að bannið hefir hjer orðið landinu stórfeld gróðalind, því án þess hefðuni við aldrei náð bestu kjarasamningi við Spán um fiskinn. Jeg dreg þetta eigi fram af því, að jeg álíti, að svo hafi í raun rjettri átt að vera, eða hefði viljað gera bannið að verslunarvöru, heldur aðeins til þess að minna á, að þjóðin ætti ekki að sjá eftir nokkrum skildingum til þess að vinna að þessu málefni, sem hefir, fyrir utan alt annað, skilað landinu beinlínis eins miklu fje eða meira með þessu einu móti.
Vil jeg svo biðja hv. deild að greiða götu þessa máls til 2. umr., og geri það að tillögu minni, að það verði fengið hæstv. allshn. til meðferðar, því þar hlýtur það að eiga heima.