08.03.1923
Neðri deild: 15. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í C-deild Alþingistíðinda. (2653)

48. mál, bæjarstjórn á Siglufirði

Atvinnumálaráðherra (KIJ):

Það kann að virðast hálfóviðfeldið að fara nú að breyta bæjarstjórnarlögum, sem eru ekki eldri en 3 ára. Þau ættu að vera svo vel undir búin, að slíks væri ekki þörf eftir svo stuttan tíma. Hins vegar skal jeg þó játa, að það stendur nokkuð sjerstaklega á með Siglufjörð í þessu tilliti. Eins og mönnum er kunnugt, þá eru síldarveiðarnar þar aðeins reknar um 2 mánaða tíma. Það geta því margir af þeim, sem þar reka arðsama atvinnu, sloppið með fallegan feng frá borði, án þess að greiða neitt til bæjarfjelagsins. Um hitt verður ekki deilt, hve nauðsynlegt það er þessu unga bæjarfjelagi að fá tekjur af þessum mönnum. Jeg get þó verið sammála háttv. þm. Barð. (HK) um það, að ekki sje rjett yfirleitt að lækka þetta tímatakmark frekar en orðið er. Það hefir nú verið að smálækka síðustu árin, og er nú svo lágt, að varhugavert gæti verið að fara lengra. En, eins og jeg tók fram áðan, það stendur alveg sjerstaklega á um Siglufjörð, hvað þetta atriði snertir, og get jeg því vel fallist á, að lög þessa bæjarfjelags verði frábrugðin öðrum í þessu efni. Það er að vísu óviðfeldið, en það verður svo að vera.

Að því er snertir 2. atriði þessa máls, þá tel jeg það varlegra að athuga það í sambandi við stjórnarskrána áður en það yrði samþykt. Því ekki er allskostar vist, nema það kunni að fara í bága við ákvæði hennar.

Að því er snertir 3. atriðið, þá skal jeg geta þess, að mig furðaði á, er jeg kom síðast til Siglufjarðar, að ekki skuli fyrir löngu vera búið að fylla upp foræði þau, sem eru þar á eyrinni. Er það til vansa fyrir bæjarfjelagið að hafa þetta svo, og getur auk þess valdið hinni mestu óhollustu.

Verð jeg yfirleitt að styrkja þetta mál, og legg það til, að því verði vísað til nefndar til frekari athugunar.