21.03.1923
Efri deild: 22. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í B-deild Alþingistíðinda. (268)

12. mál, aðflutningsbann á áfengi

Forsætisráðherra (SE):

Það mætti auðvitað takast með æsingum að fá þjóðina til að ganga inn á eitthvað í bili, sem hana mundi síðar iðra við rólega yfirvegun. En bestu kjörin geta þá verið farin úr sögunni, og væri þá ver farið en heima setið. En hefði nú atkvæði hv. þingmanns fallið eins, ef það hefði verið úrslitaatatkvæði? Er það víst?