28.03.1923
Efri deild: 29. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í C-deild Alþingistíðinda. (2694)

109. mál, sameining ritsímastjóra og póstmeistarastarfanna á Akureyri

Atvinnumálaráðherra (KIJ):

Jeg ætla ekki að segja mikið um þetta frv. við 1. umr., en skal aðeins geta þess, að það fer í sömu átt og óskir manna í fyrra. Það mun að vísu ekki hafa komið fram í þingsályktunarformi, en margar raddir heyrðust um það, að sameina póst- og símaafgreiðslu sem víðast, þar sem því væri hægt við að koma. Út af þessu skrifaði jeg aðalpóstmeistara og landsímastjóra þann 24. maí í fyrra og bað þá um upplýsingar um, hvernig þeir litu á málið og hvort þetta væri eigi víða gerlegt. Svar landsímastjóra var á þá leið, að hann mælti eindregið með að koma þessu í framkvæmd, og getur hann þess, að þar sem sameinuð hafi verið póst- og símaafgreiðsla, eins og t. d. í Stykkishólmi, þar hafi það gefist vel. Frá landsímans sjónarmiði væri ekkert að athuga við þetta. Að vísu er það ekki eins mikill sparnaður og sumir kunna að gera sjer í hugarlund. En þótt starfsmennirnir hafi þannig meira að inna af hendi, þá verða þeir betur launaðir og verða því ánægðari með kjör sín. Sendi landsímastjóri mjer lista yfir símastöðvar þær, þar sem sameining þessara sýslana gæti komið til mála. Legg jeg til, að í hvert skifti sem slíkar sýslanir losna á þeim stöðum, þá sje reynt að koma sameining á. Aðalpóstmeistari var ekki eins meðmæltur þessu og landsímastjóri, en hyggur þó, að það geti látið sig gera. Þótt póstafgreiðslumenn geti tekið að sjer símaafgreiðslu, þá sje ekki eins auðvelt fyrir stöðvarstjóra að taka að sjer póstafgreiðslu. Annars afhendi jeg skjöl þessi til leiðbeiningar þeirri nefnd, sem málinu verður væntanlega vísað til.