02.03.1923
Neðri deild: 10. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í C-deild Alþingistíðinda. (2749)

39. mál, vörutollur

Flm. (Jón Sigurðsson):

Jeg þarf lítið að svara þeim aðfinslum, sem frv. hefir mætt. Þær hafa í raun og veru snúist um aukaatriði. Hv. þm. Ísaf. (JAJ) drap á nokkrar vörutegundir, sem varhugavert væri að tolla, svo sem niðursoðna mjólk, því á ýmsum stöðum á landinu væri ekki hægt að fá innlenda mjólk, og ekkert gert til að bæta úr því. Það mun rjett vera, að það hefir ekki verið gert, en nú er fjelag í Borgarfirði, sem hefir soðið niður rjóma, en er nú í þann veginn að breyta til og taka fyrir niðursuðu á mjólk. Hygg jeg, að það sje víðar í undirbúningi. Þessa viðleitni viljum við styðja. Það er nóg mjólk til í landinu, ef hægt væri að koma henni á markaðinn, en það hefir ekki verið hægt að þessu; samgönguleysið hamlað því. En fyrst svo er, er sjálfsagt að fullnægja þörfinni á þann hátt, að flytja mjólkina inn niðursoðna.

Þá gat sami hv. þm. (JAJ) þess, að tollur á kjöti mundi vera of lágur, en jeg sje ekki ástæðu til að hafa hann hærri. Hann er svipaður og á spaðsöltuðu kjöti í Noregi, en hærri en á stykkjuðu kjöti.

Þá hefir því verið hreyft, sem aðalmótbáru, að þetta mundi draga úr vöruvöndun í landinu. Bæði 1. og 2. þm. Reykv. (JakM og JB) hjeldu því fram, en rök þeirra sannfærðu mig ekki, og jeg hygg, að reynslan sýni, að svo verði ekki. Þó svo væri, sem háttv. 2. þm. Reykv. (JB) sagði, að smjörið væri nú verra en áður, þá sannar það ekkert, því verkunaraðferðin er önnur nú en á þeim tíma, er hann vitnaði til. Hann bar saman heimaverkað smjör og rjómabússmjör. En það er ekki rjettur samanburður. Rjómabú fara að koma upp aftur, og mun þá sýna sig, að vara þeirra stendur ekki að baki hinni útlendu. Þá hefir því verið hreyft, að ekki yrði framleitt nóg af sumum vörutegundum. Og mun það ef til vill rjett um egg og osta, en það verður aðeins í bili. Jeg geri fastlega ráð fyrir, að meira kapp yrði lagt á þessa framleiðslu, ef tollvernd kæmist á, svo að við gætum innan skams fullnægt þörfum okkar, einnig á þessum sviðum. Það var til að ná þessu markmiði, að þessar vörur voru teknar með. Mjer er að vísu ekki fullkunnugt um, hvort framleiðsla þessi hefir átt örðugt vegna erlendrar samkepni, en þær upplýsingar, er jeg hefi fengið, benda þó í þá átt.

Háttv. 1. þm. Reykv. (JakM) benti á þær afleiðingar, að varan yrði dýrari, og er hugsanlegt að svo yrði í bili. En reynslan er sú, að þegar framleiðslan eykst, lækkar verðið vegna samkepninnar innanlands. Sje jeg svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta. Vona jeg, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.