16.03.1923
Neðri deild: 21. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í C-deild Alþingistíðinda. (2757)

39. mál, vörutollur

Jón Sigurðsson:

Við flutningsmenn getum verið þakklátir nefndinni fyrir meðferð hennar á frv. Að vísu er þar eitt atriði, sem við hefðum kosið að hún hefði ekki felt niður, þ. e. tollinn af niðursoðinni mjólk, en það er þó ekkert meginatriði, fyrst nefndin styður frv. að öðru leyti. Því er þó ekki að leyna, að þó að tollur af niðursoðinni mjólk verði feldur niður nú á þessu þingi, verður það óhjákvæmilega tekið upp síðar. Það er vöknuð svo sterk hreyfing fyrir því, að þingið styðji atvinnuvegina, beint og óbeint, og efli þannig framleiðsluna, að hún mun tæplega hjaðna niður á næstu árum. Enda væri það stórlega misráðið, ef þingið styddi ekki tilraunir til þvílíks iðnaðar í landinu, sem miðar að því að gera framleiðsluna fjölbreyttari og spara erlendan gjaldeyri. Jeg býst því við, að þessi liður komi á næsta þingi, ásamt öðrum vörutegundum, er við höfum gengið fram hjá að þessu sinni.

Eitt atriði er það, sem komið hefir berlega fram hjá öllum, sem talað hafa móti frumvarpinu, sem jeg get ekki stilt mig um að benda á: Þeir telja allir nauðsynlegt að styrkja framleiðsluna, en þó telja þeir öll tormerki eða jafnvel fráleitt að styðja hana meðan hún er svo skamt komin sem nú er. Þeir vilja með öðrum orðum ekki styrkja framleiðsluna fyr en hún er orðin svo mikil og öflug, að vafasamt er að hún þurfi þessa stuðnings með. Óneitanlega mjög góður stuðningur! Það er reynsla erlendis, að meðan framleiðsla í einhverjum atvinnugreinum er í bernsku, þá þarf að styrkja hana, en síður, þegar hún er búin að vinna innlenda markaðinn. Við flm. leggjum því áherslu á það, af þessum ástæðum, að Styrkja nú þegar í upphafi niðursuðu og ýmsa aðra framleiðslu, t. d. á osti og eggjum, vegna þess, að við teljum ekki nóga framleiðslu á því í landinu. Er það þá nokkuð annað en slagorð hjá andstæðingum frv., þetta, að vilja styðja framleiðsluna í landinu? Nei! Því þeir vilja ekkert á sig leggja, þegar til alvörunnar kemur.

Þá vil jeg ögn minnast á heyið sjerstaklega. Samkvæmt verslunarskýrslum fyrir árið 1919 var flutt inn hey fyrir kr. 1557.00, og ef jeg man rjett, mun það vera svipað frá fyrri árum, og getur það ekki talist mikið. Við tókum ekki heyið með af því, að það skifti miklu máli fjárhagslega, eins og sakir standa nú, heldur af því, að það er óeðlilegt að flytja inn þá vöru, þann jarðargróða, sem mest er framleitt af í landinu. Hæstv. fjrh. (MagnJ) sagði, að þetta gæti verið hættulegt í harðindum og samgönguleysi. Heldur hæstv. ráðherra, að ljettara sje að koma heyi en öðru fóðri, þegar hafís legst fyrir landi og illfært um sveitirnar sökum ófærðar? Þau harðindaár, sem komið hafa í seinni tíð, hefir lítið eða ekkert verið flutt inn af heyi, en mikið af fóðurbæti, og sýnir þessi reynsla ljóslega, hver þörf er á útlendu heyi, enda er það of rúmfrekt í flutningi, samanborið við næringargildi, þegar þörfin er mest á björg í harðindum.

Hv 1. þm. Rang. (GunnS) talaði um, að Framsóknarflokkurinn hefði óskað eftir samvinnu við okkur í þessum efnum. Við bíðum þess og væntum athugasemda þaðan, en það kom ekkert fram, svo að við gátum ekki beðið lengur.