16.03.1923
Neðri deild: 21. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í C-deild Alþingistíðinda. (2759)
39. mál, vörutollur
Jón Auðunn Jónsson:
Mjer heyrðist hv. frsm. (MG) halda fram, að tollurinn hækkaði 2–3 krónur á einum fötum, ef frv. næði fram að ganga. Þetta vildi jeg leiðrjetta. Jeg hefi athugað, hvað góð föt eru þung, og samkvæmt því hækkar tollurinn aðeins um kr. 1.15 til 1.30, og af vönduðu fataefni nemur hækkunin 20–28 aurum á hvern metra frá því sem nú er.
Jeg játa, að jeg var í dálitlum vafa um heyið. En þar sem stjórnin hefir heimild til ívilnunar á tolli, samkvæmt lögum frá 1921, skiftir þetta ákvæði ekki miklu máli. Jeg greiði þessu atkv. í fullu trausti þess, að stjórnin lækki tollinn niður í sama og 2. flokk, nær sem ástæður eru til innflutnings.