16.03.1923
Neðri deild: 21. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í C-deild Alþingistíðinda. (2762)
39. mál, vörutollur
Jón Þorláksson:
Það voru aðeins fáein orð viðvíkjandi því, sem hv. 2. þm. Skagf. (JS) sagði um mjólkurtollinn. Hann var að lofa oss því, að þó verndartollurinn kæmist ekki á strax, þá mundi hann koma siðar, og taldi hann sjálfsagðan, strax er farið væri að framleiða niðursoðna mjólk innanlands í stórum stíl. En þetta er svo mikil fjarstæða og svo öfgakent, að rjettast er að kveða það niður strax. Niðursuðumjólk er mikið keypt og alveg nauðsynleg þurrabúðarfólki og fjölskyldum í kaupstöðum, því mjólkurskorturinn er þar viða tilfinnanlegur. Og þó vísir til niðursuðu á mjólk kæmist hjer á, og jafnvel þó hún væri í „stórum stíl,“ eftir íslenskum mælikvarða, þá mundi samt verða löng bið á því, að hún yrði fullnægjandi fyrir landið. Þessi iðn kynni að vera stuðningsverð af hálfu hins opinbera, ef það reyndist heppilegra að hagnýta innlenda mjólk á þennan hátt, heldur en vinna úr henni smjör og ost. En sá stuðningur á að koma frá landinu öllu, en ekki nær eingöngu frá fátækum fjölskyldumönnum í kaupstöðum og sjóþorpum. Það er sýnilega órjettlátt að láta þá bæði leggja fje þessum iðnaði til stuðnings og auk þess greiða háan toll af útlendri mjólk. Slíka leið, til stuðnings íslenskum iðnaði, má ekki fara.
Annars má svo segja, að frv. sje orðið í höndum nefndarinnar að versta hrærigraut. Það er samsuða af tekjuaukafrv. og verndartollafrv. En það er ilt að sameina þetta tvent svo vel fari, enda hefir nefndinni tekist það illa. Jeg lýsti því hjer við annað tækifæri, að ef ástæða þætti til að þyngja enn meir tollbyrðina á mönnum í þessu skattþjáða landi, þá ætti að leggja fyrst og fremst tolla á þær útlendar vörur, sem menn helst gætu sparað við sig. Fjhn., sem hafði þetta til meðferðar, hefir þó fundist þetta vera of erfið leið, og því tekið það ráð að stinga tekjuaukagreinunum inn í verndartollafrv. Auk þessa hefir nefndin orðið harla óheppin í tillögum sínum. Það er t. d. bersýnileg fjarstæða að ætla sjer að fara að setja mjög háan toll á útlenda vefnaðarvöru eftir þyngd, þar sem hún innifelur svo mjög mismunandi verðmæti. Með þessari aðferð verður tollurinn á dýrustu vörunum, sem helst ætti að spara, mjög lágur í samanburði við tollinn á verðminstu vörunum. Þessa gætir enn meir við upptalninguna á matvælum (2. liður). Þar er gert ráð fyrir 50 au. tolli á hvert kg. innan þess flokks. Svo ójafnt er þarna á komið, að í sumum tilfellum verður tollurinn 2–3-falt innkaupsverð, t. d. á sumum ávöxtum á þeim tímum, sem þeir eru ódýrastir. Þarf engum blöðum um það að fletta, hvað þetta er órjettmætt. Það virðist næsta ósanngjarnt að meina mönnum hjer, á þessu kalda ávaxtasnauða landi, að ná sjer í ávexti á þeim árstímum, þegar þeir eru svo ódýrir í nágrannalöndunum, að fólk fær að hirða þá fyrir lítið verð eða ekkert. Það er ekkert á móti því að segja, þó nokkur verðtollur sje lagður á, en þá er of langt gengið, þegar hann nemur margföldu innkaupsverðinu. Sama er að segja um grænmeti og fleiri slíkar vörur, sem geta verið ómissandi, eins og t. d. sumum sjúklingum. Þetta sýnir, að það er óframkvæmanlegt að tolla þessar vörur eftir þyngd, svo rjettlátlega komi niður, nema með margfalt meiri sundurgreiningu en þeirri, sem hjer á sjer stað, og yrði þó erfitt að koma henni við.
Annars má svo segja, að ein stefna komi fram í frv. nefndarinnar, og er hún í fullu samræmi við frv. flm., nefnilega sú, að vandlega er sneytt hjá tolli á þeim vörum, sem landbændur og landbúnaður þarf við, en er nær eingöngu settur á þær vörur, sem þurrabúðarfólk neytir, og þá jafnt þeir efnaðri sem fátæklingarnir. Stefna þessi kann að hafa eitthvað til síns máls, en of langt má fara í þessu efni, og mun fleirum en mjer sýnast svo. Jeg sje, að tveir þm., þeir hv. þm. Ak. (MK) og Ísaf. (JAJ) hafa treyst sjer til að mæla með þessu, og kann þá að vera, að erfitt sje fyrir aðra þurrabúðarfulltrúa að setja sig á móti þessu. En hjer er of langt gengið.
Í 2. lið b er gert ráð fyrir 20 au. tolli á hvert kg. af osti og eggjum. Það liggur í augum uppi, að tollur á þessum vörutegundum í verndarskyni er óþarfur, og leyfi jeg mjer því að skoða hann frá öðru sjónarmiði. Hjer er alt keypt upp, sem framleitt er af þeirri vöru í landinu. Yfirleitt eru það samgönguvandræðin, sem hamla framleiðslunni, en ekki markaðsleysið. Hjer hagar samgöngum viða svo til, að ekki borgar sig að flytja vöruna frá framleiðslustað til neytenda. En hitt er jafnvist, að á þeim annmörkum verður engin bót ráðin með verndartollum.
Þá var það till. um heytollinn, og veit jeg satt að segja ekki, hvernig á að lita á hana. Hv. 2. þm. Skagf. (JS) skoðar það sem verndartoll. Jeg held aftur á móti, að hjer verði seint framleitt svo mikið af heyi, að sú framleiðsla þurfi á verndartolli að halda. Sjái menn sjer hag í því að ala skepnur, t. d. í kauptúnum, á útlendu fóðri, þá er það skammsýni að hamla því. Miklu fremur ber að líta á útlent skepnufóður sem iðnaðarþjóðir líta á hráefni, því það er í sjálfu sjer óunnið efni eða hráefni til mjólkurframleiðslu. Og íslenskum landbúnaði tel jeg hollast, að reynt sje sem mest til þess að afla nauðsynlegs fóðurs, hvort sem það er útlent eða innlent.