22.03.1923
Neðri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í C-deild Alþingistíðinda. (2781)
39. mál, vörutollur
Jón Auðunn Jónsson:
Háttv. 2. þm. Reykv. (JB) var hissa á því, hversu þm. bænda, eða bændur, væðu uppi í nefndinni, og eitthvað þessu líkt undraðist háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ) framferði þm. kaupstaðabúa. En nú vill svo til, að það er aðeins einn bóndi í nefndinni. Jeg vil taka það fram, að jeg er fremur hlyntur bændum, en vil þó ekki ívilna þeim neitt sjerstaklega; en ef það á að fara að takmarka eitthvað innflutning á miður nauðsynlegum vörum, lendir það oftast harðast á íbúum bæjanna; sama er og um tollhækkun á slíkum vörum. Jeg veit ekki betur en báðir þessir háttv. þm. (JB og JÞ) játi, að það ætti að draga úr innflutningi á ónauðsynlegum varningi og að þetta frv. fari í þá átt, svo og hitt, að ná tekjum í ríkissjóð. Þá hefir verð sagt, að hjer væri verið að banna innflutning á grænmeti og mikið talað um nauðsyn þess og nytsemi, og því er jeg samþykkur, en eins og frv. ber með sjer, er slíkt ekki tilgangurinn. En sultuðu og niðursoðnu grænmeti má og á að hækka tollinn á, því það er ekki nauðsynlegt, vegna þess, að þurkað grænmeti má fá á flestum tímum árs. Annars veit jeg ekki til, að fátækari alþýða neyti mikils af þessu tæi, minsta kosti er það ekki tíska í mínu kjördæmi. Aftur er það egg og ostur, sem eru meiri nauðsynjavörur. Það má gera ráð fyrir að ca. 18 egg vegi 1 kg., og nemur þá tollhækkunin sem svarar 1 til 11/4 eyri á hvert egg.
Margir hafa talað um, að vefnaðarvörutollurinn komi harðast niður á erfiðisfatnaði og ódýrari fataefnum. Þetta er misskilningur, því kaupmenn munu í engum tilfellum leggja tollinn á vöruna eftir þunga, heldur taka hverja „faktúru“ með hinum ýmsu tegundum vefnaðarvöru, og leggja tollinn á vöruna eftir hundraðsgjaldi (%) af innkaupsverði. Löggjafarvaldið hefir ávalt verið að leita eftir leiðum til að tolla hátt silkivefnað og aðra miður nauðsynlega vefnaðarvöru, en altaf strandað á eftirlitsörðugleikunum. Jeg er viss um, að tollurinn kemur mest niður á dýrari vörum, ef frv. nær fram að ganga, og þykist hafa fært fullar líkur fyrir því, með því að benda á álagningsaðferð kaupmanna.
Í sambandi við tollinn á vefnaðarvörum vil jeg enn benda á það, að mjög mikið meira mætti nota af íslenskum fatnaði en gert er, og þá einkum nærfatnaði. Nú er mjög kvartað yfir atvinnuleysi hjer á landi á vetrum, einkum í kaupstöðum, og Íslendingar eru ekki orðnir það illa að sjer enn, að þeir kunni ekki að tæja föt úr ull. Auk þess er það víst, að íslensk föt verða ódýrari, fyrir utan það, hve miklu skjólbetri og endingarbetri þau eru.
Viðvíkjandi heytollinum vil jeg endurtaka það, að jeg ætlast til, að stjórnin megi nota sjer heimild, sem hún hefir í lögum nr. 38, frá 27. júní 1921, til að færa tollinn niður. Háttv. þm. Borgf. (PO) var ekki alveg fallinn frá því, að leggja toll á niðursoðna mjólk, en jeg vil benda honum á það — án þess, að jeg vilji draga úr íslenskum framleiðslumöguleikum — að sjálfsagt verður ekki hægt að framleiða niðursoðna mjólk hjer á landi fyrir það verð, sem bændur geta fengið fyrir mjólkina á annan hátt. Nú munu þær verksmiðjur, er framleiða niðursoðna mjólk utanlands, gefa 27–29 aura fyrir lítrann, en á tekjuskattsframtali bænda reikna þeir sjer mjólkurpottinn á 30–40 aura, og ætla jeg, að það sje mjög í samræmi við það verð, sem nú er á smjöri og öðrum mjólkurafurðum.