22.03.1923
Neðri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 996 í C-deild Alþingistíðinda. (2782)

39. mál, vörutollur

Jón Baldvinsson:

Háttv. þm. Ísaf. (JAJ) neyddi mig til að segja nokkur orð. En fyrst jeg er á annað borð staðinn upp, ætla jeg að gera athugasemdir við ræður nokkurra háttv. þm., frá því málið var hjer síðast til umr.

Háttv. frsm. meiri hluta fjhn. (MG) vildi mæla gegn því, að tollur af sykri væri mjög hár, en um það verður ekki deilt, að hann er mjög tilfinnanlegur fyrir alþýðu manna. Hann mintist og á, að jeg væri á móti öllum óbeinum tollum og vildi fella þá burtu, en væri jafnframt á móti því, að beinir skattar væru lagðir á. það er alveg rjett, að jeg er á móti óbeinum sköttum, en jeg hefi ávalt haldið fram beinum sköttum, svo það er rangt hjá þm. Og jeg skyldi ekki hafa á móti þeim skatti, sem nú er ákveðinn af lægstu tekjum manna, ef allir óbeinir skattar væru látnir niður falla.

Háttv. sami þingmaður (MG) gaf og í skyn, að jeg væri á móti tollálagningum, sökum þess, hve vinsælt það væri meðal kjósenda. En jeg vil benda honum á það, að með sama hætti má segja, að hann, sem þingmaður bændakjördæmis, sje að vinna til þakklætis kjósenda sinna, með því að reyna að þyngja skatta á kaupstaðarbúum sjerstaklega. Þá ljet hann og á sjer heyra, að jeg væri ekki mikill sparnaðarmaður, en líklega má deila um það, hvor okkar sje betri að því leyti, og það ætla jeg óvíst, að hann haldi sparnaðarmenskuorðinu út þetta þing. Fjáraukalögin frá 1920–1921 eiga eftir að koma til umræðu hjer. Og þá gefst mönnum á að líta sparnað hans.

Jeg ætlaði mjer að koma með brtt. við 3. umr., en háttv. þm. Str. (MP) tók af mjer ómakið, þótt ekki gangi hans tillaga eins langt og jeg hefði óskað.

Háttv. þm. Borgf. (PO) benti á ýmislegt í ræðu sinni, sem þörf væri á að koma í framkvæmd, ef hægt væri, svo sem að fólk það, sem nú sækir bíó og kaffihús, settist að iðnaði heima hjá sjer á kvöldin. En það er hjer sem annarsstaðar töluvert annað að geta bent á galla og fundið ráð við þeim og að koma þeim ráðum í framkvæmd.

Háttv. þm. Ak. (MK) taldi tollinn, sem frv. færi fram á, vera hóflegan, en jeg veit ekki hvar á að setja mörkin fyrir því, hvað hóflegt skuli teljast, þegar tollur af sumum vörutegundum samkv. þessu frv. nemur meiru en innkaupsverði vörunnar. Munu fleiri en jeg telja slíkt háan toll.

Háttv. þm. Ísaf. (JAJ) talaði um það, að hvert land ætti að bjargast við sín gæði. Það getur nú verið gott og blessað, svo lengi sem hægt er að framleiða í landinu sjálfu þau gæði, sem menn þurfa, til þess að lifa sómasamlegu lífi. En því eru viðskifti milli þjóðanna, að ein hefir það, sem aðra brestur, og þessi viðskifti bæta lífið og gera það fjölskrúðugra og þægilegra. Hjer er t. d. ekki hægt að framleiða ávexti, og verður því að fá þá erlendis frá. Mig minnir einnig, að einhver hjeldi því fram, að hjer fengist nóg grænmeti, en það er alls ekki rjett. Þótt hjer kunni að vaxa t. d. skarfakál, hundasúrur, eða hófblöðkur, þá telst slíkt vart til grænmetis.

Háttv. þm. Ísaf. (JAJ) áfeldist þau orð, að bændur væru farnir að gerast ágengir, þar er þeir heimtuðu bæði verndartolla og verðlaun fyrir útfluttar afurðir. Hann hefir þó orðið mjer sammála um það, að nokkuð langt væri gengið með því að tolla niðursoðna mjólk, því fjhn., þar sem hv. þm. á sæti, feldi það niður úr hinu upprunalega frv., sem hjer var borið fram.

Sami háttv. þm. (JAJ) hjelt því fram, að í nál. háttv. fjhn., á þskj. 123, beri að skilja orðin „niðursoðnum ávöxtum og grænmeti“ og „syltuðum ávöxtum og grænmeti“ svo sem „niðursoðnum“ og „syltuðum“ætti þar einnig við grænmeti. Þetta er mjög óljóst orðað, ef það á að skiljast svo, því samkvæmt málvenju eiga umrædd orð einnig við hverskonar grænmeti. Þessu þarf því að breyta, ef fyrirbyggja skal, að tollur verði lagður á grænmeti, sem ekki er niðursoðið eðá sultað.

Jeg vil ekki deila við hv. þm. Ísaf. (JAJ), hve mörg egg sjeu í kílóinu; nefndin hefir verið svo samviskusöm, að hún hefir klæðst úr hverri spjör, til þess að afla sjer upplýsinga. Svo mun þó alment talið hjer, af verslunarmönnum, að eigi sjeu eins mörg egg í hverju kílógrammi sem háttv. þm. segir, en sem sagt, um þetta má deila, enda eggin misþung.

Þá þykir mjer og alltilfinnanlegur tollur, sem leggja skal á ostinn, eða 20 aura á hvert kílógramm.

Jeg vona, að háttv. deild sjái, að eigi er sanngjarnt að samþykkja þetta frv., en verði það gert, þá vona jeg, að það verði með breytingum samkv. brtt. hv. þm., Str. (MP), en best þætti mjer, að alt væri felt.