22.03.1923
Neðri deild: 26. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í C-deild Alþingistíðinda. (2784)

39. mál, vörutollur

Þorleifur Guðmundsson:

Eitt atriði er það í þessu máli, sem ekki hefir verið tekið nægilega vel fram enn þá, en það er heytollurinn. Mjer virðist, að þeir hv. þm., sem flestir eru úr kaupstöðunum, er hæst hafa talað hjer um, að eigi megi leggja toll á aðflutt hey, muni aðallega hafa haft fyrir augum þá einstaka menn í kaupstöðum, er þurfa á heyi að halda, en virðast hafa gleymt því, að ýmsir aðrir kjósendur þeirra í kaupstöðunum hafa það beinlínis fyrir atvinnu, að afla heyja og selja í kaupstöðunum. þessir háttv. þm. hafa slegið því fram, að bændur skaðist á því að selja hey frá jörðum sínum, sökum þess, að þeir geti ekki haldið þeim í eins góðri rækt með því móti, og að það sjeu mest búskussar, er slíkt gera. Þótt þetta geti verið rjett í einstaka tilfellum, þá eru þó ástæðurnar, sem mæla með því, að það hey, sem þörf er á hjer á landi, þess sje aflað hjer, yfirgnæfandi. Skal jeg nú telja helstu rökin, sem til þess liggja.

Fyrst má telja það, að á þessum tímum, þegar atvinnuskortur er hjer á landi, þá ber síst að bægja mönnum frá því að vinna að aukinni framleiðslu þess, sem hjer er hægt að afla. En ýmsir kaupstaðabúar hafa lagt það fyrir sig, að heyja á sumrum, til þess að selja hey til þeirra, er á því þurfa að halda í kaup stöðunum. Er það þjóðinni fyrir bestu, að launa fremur vinnu þessara manna en þeirra, er vinna að sama starfi erlendis.

Í öðru lagi má telja það, að víða er nú svo komið hjer á landi, að slægjur eru ekki notaðar eins og hægt er að gera, jörðunum að skaðlausu. Bæði er það, að jarðir eru sumstaðar komnar í eyði, og slægjurnar því ekki notaðar, einnig hafa sumstaðar aukist slægjur, sökum áveitu, svo að ábúandinn hefir ekki nógu stóran bústofn til að nýta alt það hey, sem jörðin getur gefið af sjer. Þá eru og heiðalönd og landsvæði, er afla mætti heyja á, ef markaður væri fyrir það. Væri það þjóðnýtara og eðlilegra, að landsmenn nýttu þessar slægjur og seldu heyið í kaupstöðunum, eða að þeir, sem á heyinu þyrftu að halda, sýndu þá framtakssemi, að kaupa slægjur og heyja sjálfir, heldur en að kaupa inn erlent hey og láta ónotaðar slægjur hjer verða úti á hverju sumri.

Hey er sú vara, sem lengst hefir verið framleidd hjer á landi, og sú varan, sem sjálfsögðust er, að vjer sækjum ekki til annara þjóða. Nóg er samt af aðfluttum varningi, þótt ekki fari það að bætast við. Ef brögð ættu að verða að slíku framvegis, þá tel jeg landið ekki lengur byggilegt, og væri þjóðinni þá nær að flytjast þangað, sem heyið er framleitt.

En þá vil jeg koma að því, er háttv. 3. þm. Reykv. (JÞ) hjelt fram. Hann sagði, að oss bæri frekar að stuðla að því, að hey yrði flutt hjer inn, sem hráefni. En þótt jeg eigi bágt með að skilja, hvað háttv. þm. meinar með því, þar sem enginn slíkur iðnaður er hjer á landi, er þarfnast slíkt hráefnis, eða getur borið það, þá vil jeg snúa mjer að öðru efni, sem líklegt er, að framleiða megi með heyinu, sem er ær eða hross. Þá vil jeg spyrja háttv. þm. að því, hvort hann hafi athugað, hvað ærin þarf mörg pund af slíku heyi, hvað það kostar, og hvaða arði hún skilar, og hvað hægt muni að ala upp hross á útlendu heyi, hvað mikið við þurfum handa þeim á hverju ári, og hvað við fáum fyrir þau, er við seljum þau upp komin. Ef háttv. þm. (JÞ) vildi reyna að setja sig inn í þetta, mundi hann fljótt komast að raun um, að fóður handa hrossi, sem fóðrað er á útlendu heyi, eftir því, sem nú er, mundi verða um 240–250 krónur, og þegar hesturinn er orðinn 6–8 vetra, fæst ekki meira fyrir hann en sú upphæð, er kostar að ala hann upp á ári hverju, og er það þó aðeins sjötti til áttundi hluti af kostnaði við uppeldi hans.

Mjer finst, að ef á að fara að leiða þjóðina út á þessar götur, að kaupa alt mögulegt frá útlöndum, þá lendi það alt í botnlausum öfgum. Til þess að sýna, hvað þjóðin virðist vera gjörn á að flytja alt mögulegt inn, skal jeg nefna sem dæmi, að nýlega kom jeg niður á hafnarbakka, er verið var að skipa upp úr einu millilandaskipinu, og verð jeg þá var við stóra pakka af mold eða torfi, sem með skipinu höfðu komið. Og þótt segja mætti, að framleiða mætti gas gegnum slíkt efni, og slíka mold sje ekki að finna hjer, þá er það auðsætt, að gas ber ekki að framleiða hjer á landi, þar sem gnægð er til af möguleikum til að framleiða rafmagn. Haldi þetta áfram, án þess að þing og stjórn taki hjer í taumána, getur farið svo, að menn fari að verða leiðir á íslensku grjóti sem byggingarefni, og færu að seilast eftir gulu grjóti frá Frakklandi, af því að þeim þættu gráu steinamir alt of gráir.