28.03.1923
Neðri deild: 31. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í C-deild Alþingistíðinda. (2791)
39. mál, vörutollur
Stefán Stefánsson:
Við flm. brtt. á þskj. 207 getum verið þakklátir háttv. allshn., fyrir undirtektir hennar, hvað snertir brtt. okkar, og get jeg því verið fáorður, enda munu brtt. okkar fáum koma á óvart, þar sem við tókum það fram, við 2. umr., að við værum mótfallnir svo mikilli tollhækkun, sjerstaklega á þessum vörutegundum, er við nefndum í tillögu okkar. Á vefnaðarvörunum af því, að engin tök eru á því fyrir mikinn fjölda fólks að veita sjer inulendan klæðnað. Tóvjelarnar eru of litlar eða of fáar, og svo eru kringumstæður margra manna þann veg, að um tóvinnu. sem gæti fullnægt öllum heimilisþörfum, er alls ekki að tala. Þessi ferfalda tollhækkun mundi því augsýnilega koma harðast niður á fjölskylduheimilunum, og er það því aðeins til samkomulags, að við höfum ekki farið lengra í lækkun tollsins. Vona jeg þess vegna, að háttv. flm. frv. verði okkur þar fyllilega sammála. Jeg hlýt að draga þá eðlilegu ályktun um afstöðu þeirra til fyrri liðsins á tillögu okkar.
Annar liður tillögunnar býst jeg við að sje siður geðfeldur háttv. flm., þar sem það er helmingslækkun á heytollinum við það, sem frv. ætlast til. En þess ber vel að gæta, að hjer er um engar verulegar tekjur að ræða fyrir ríkissjóð, og þá ekki heldur um neitt verulegt tap eftir tillögum okkar flm. brtt. Það er aðeins þetta, að gera það ekki einstökum mönnum með öllu ókleift, sem nauðbeygðir eru til þess af sjerstökum ástæðum að flytja inn lítið eitt af útlendu heyi; enda er 3 kr. tollur á 100 kg. allhár, og þegar litið er til þess, að ekki fluttist inn hey nema fyrir ca. 1500 kr. síðastliðið ár, er sýnilegt, að ekki er eftir miklu að seilast fyrir ríkissjóðinn, hvort tollurinn er hærri eða lægri.
Spurningin er þá aðeins þessi: Er það rjett að gera það með öllu ófært að flytja inn hey, jafnvel hvað sem við liggur? Jeg segi nei. Þessa tillögu okkar ber því líka að skoða fram borna aðeins til samkomulags.