26.02.1923
Efri deild: 6. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1007 í C-deild Alþingistíðinda. (2798)
28. mál, vörutollur
Flm. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):
Jeg skal strax gera þá aths., að sá ljóður hefir orðið á tilbúningi þessa frv., að síðasta málsgrein 5. liðs er óþörf, og er það af vangá gert, og mjer um að kenna, en eigi prenturunum eða skrifstofunni. Það er aths. um kola- og salttollinn, sem mjer láðist að strika yfir, áður en frv. fór til skrifstofunnar.
Um vörutollslögin mun nú vera það að segja, að þau hafa reynst vel, að því leyti sem litið er á þau frá sjónarmiði ríkissjóðs. Honum munu þau hafa veitt drjúgar tekjur. Er því ekki þörf breytingar á þeim frá því sjónarmiði sjeð. Enda hefi jeg reynt að halda ramma vörutollslaganna, aðeins breytt 1. lið verulega og fært á milli liða, eftir því, sem betur þótti fara.
Tilgangur frv. er sá, að framleiðslunni sje sýndur meiri sómi heldur en gert er með núgildandi vörutollslögum, „Holt er heima hvat“, er að verða kjörorð vorra tíma. Allar þjóðir keppast við að búa sem mest að sínu.
Sjeu vörutollslögin skoðuð frá þessu sjónarmiði, þá sjest, að ýms atriði þeirra fara í bága við þessa hugsun, því sami tollur er lagður á ýmsar vörutegundir, hvort sem þær eru fluttar hingað tilbúnar eða aðeins efnið í þær. T. d. er svo um sútuð skinn og efnið til sútunarinnar. Jafnhár tollur á hvorutveggja. Þá má nefna, að jafnhár tollur er á gluggum og hurðum eins og trjáviðnum óunnum. Fataefnin tolluð jafnt og tilbúin föt. Jafn tollur á tilbúnum seglum og segldúk. Tollur jafn á tunnum sem tunnuhlutum. Jafn á skósvertu og efnum og umbúðum til skósvertugerðar. Á sápu og öllum efnum til sápugerðar, að undanskildum feitarsýrum og kókosfeiti, eða kókosolíu, sem heyra þó undir 2. fl.
Litarefni til iðnaðar, þar á meðal til tóvinnuvjelanna, eru í 7. fl., en ættu að vera í 1. fl.
Ýmsar vjelar til landbúnaðar, garðyrkju, enn fremur bifvjelar, eru í 2. fl. En aftur á móti eru t. d. prentvjelar, tóvinnuvjelar, sápugerðarvjelar, sútunarvjelar og ýmsar aðrar vjelar til iðnaðar í 7. fl. Tollurinn af þeim þess vegna þrefalt hærri en hinum vjelunum.
Þá er það enn fremur mjög varhugavert, að tollurinn virðist ekki nærri nógu hár á aðfluttu kjötmeti og fiskmeti, sem við framleiðum nóg af sjálfir, og síst ætti því að vera ástæða til að flytja inn í landið, og það jafnvel frá þjóðum, er tolla okkar vöru. Þetta alt virðist mjer ástæða til að leiðrjetta, en hefi ekki treyst mjer til að taka tillit til þess alls, vegna örðugleika í framkvæmdinni. Svo er t. d. með tilbúin föt og fataefni, glugga og hurðir. En vil gjarnan ræða nánar um það atriði við nefnd. Breytingarnar ná aðallega til 1.–4. flokks.
Í 1. fl. koma kornvörur og efni til iðnaðar, óunnin og hálfunnin. í 2. fl. járnvörur, fóðurmjöl o. fl. í 3. fl. iðnaðarvörur, sem byrjað er að vinna í landinu sjálfu, en eigi nógu mikið framleitt af enn sem komið er. í 4. fl. vörur, sem framleiða má með innlendum iðnaði, og ýmsar aðrar vörur, einnig fisk- og kjöt- meti.
Sem bendingu um það, hvort tollurinn sje settur of hár á ýmsar þær vörur, sem nefndar eru í 4. fl., og hve miklu tollhækkunin nemur, má taka t. d., að á sápu, sem vegur 50 gr., nemur tollhækkunin einum eyri.
Um það, hvaða áhrif þetta frv. muni hafa á tekjuhæð tollsins, þá tel jeg það ekkert vafamál, að það muni fremur auka tollinn en lækka nú, sem liggur í því, að iðnaðurinn er svo skamt á veg kominn hjá okkur, svo að tollhæð 4. flokks myndi gera betur en að bæta upp það, sem tapast á fyrsta eða fyrstu flokkunum.
Tel jeg svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv. að sinni, en legg til, að því verði, að lokinni umr., vísað til fjhn.