30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1029 í C-deild Alþingistíðinda. (2828)
141. mál, skoðun á síld
Magnús Kristjánsson:
Mjer þykir leiðinlegt að fjölyrða um jafnlítilfjörlegt mál sem þetta er. En þar sem hv. frsm. (StSt) var að bera fram spurningu, sem jeg hefi svarað áður, og hann hefir ekki tekið eftir því, sem áður er komið fram í málinu, get jeg ekki talið eftir mjer að endurtaka það. Jeg gat þess við 2. umr., að það væri viðurkent af flestum mönnum, nema ef til vill hv. 1. þm. Eyf. (StSt), að vöruvöndun og eftirlit með útflutningi afurða vorra sje stórvægilegt framfaraatriði og nauðsynlegt til þess að þjóðarbúskapurinn fari sæmilega úr hendi. Jeg hygg, að þetta hljóti að vera næg ástæða til að fella þetta frv., frá sjónarmiði þeirra manna, sem hugsa eitthvað um þessa hluti. Því verður ekki á móti mælt, að það er stórt skref aftur á bak að fækka eftirlitsmönnum, sem nú eru of fáir. Það er ekki til neins að samþykkja lög um vöruvöndun, og hafa enga menn til að sjá um, að þeim lögum sje framfylgt.
Menn vitna í, að síldveiði hafi verið lítil fyrir Austurlandi á síðustu árum, en það er lítilvæg ástæða, því að þetta getur breyst fyr en varir. Austfirðir geta aftur orðið mesta síldveiðasvæði landsins. Því finst mjer þetta vera kákbreyting, algerlega út í loftið.
Þessi sami hv. þm. (StSt) þóttist hafa fengið ástæðu, sem beindi rothöggi að þeim, er væru á öðru máli en hann, þar sem hann sagði, að kostnaður ríkissjóðs við síldarmat á Austfjörðum hefði verið 6 kr. á hverja tunnu undanfarin ár. Þetta virðist mikil upphæð, en er í raun og veru ekki fullkomlega rjett. Þessi reikningur er fyrir þau árin, sem dýrtíðaruppbótin var langhæst, og má því gera ráð fyrir, að þessi kostnaður fari stórum lækkandi. Auk þess get jeg ekki sjeð annað en að ferðakostnaðurinn hafi verið nokkurn veginn óþarfur, og ætti stjórninni að vera innan handar að sjá um, að slíkir ferðakostnaðarreikningar komi ekki fram eftirleiðis.
Áður en jeg lýk máli mínu, skal jeg^ geta þess, að hv. frsm. (StSt) lagði mikið upp úr því við 2. umr., að frv. væri flutt með ráði og samþykki hæstv. stjórnar. Jeg hygg, að hann hafi þar leyft sjer að fullyrða nokkuð mikið. Eftir þeim upplýsingum, sem jeg hefi fengið, hygg jeg, að stjórnin muni ekki kannast við, að hún hafi hvatt hv. þm. til að flytja frv., og mun hv. þm. hafa notað þessa ástæðu eins freklega og framast var auðið, og helst um of. Jeg hygg, að ummæli hans verði tæplega rjettlætt, þó að hann hafi á hlaupum skotið því að hæstv. atvrh. (KIJ), að hann mundi bera fram þetta frv.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að svara hv. frsm. (StSt) frekar. Mjer þykir sennilegt, að rök þau, sem hann kann að bera fram eftir þetta, muni ekki vera mikils virði, og mun því varla til þess koma, að jeg þurfi að taka aftur til máls.