30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1031 í C-deild Alþingistíðinda. (2829)
141. mál, skoðun á síld
Bjarni Jónsson:
Það var í alla staði rjett, sem hv. þm. Ak. (MK) sagði, og skal jeg einungis bæta við fáeinum athugasemdum.
Sparnaðurinn við afnám þessarar sýslunar hlýtur að vega smátt í augum þeirra manna, er nýlega fylgdu frv., er hafði í för með sjer stofnun 4–5 nýrra embætta. Hygg jeg, að hv. frsm. (StSt) hafi verið í þeim flokki, að minsta kosti greiddi hann þannig atkvæði um dagskrá hv. 4. þm. Reyky. (MJ) í því máli. Því skil jeg ekki, að honum geti vaxið svo í augum, þó að þessi roskni maður haldi atvinnu sinni í nokkur ár, nema hann vilji með þessu höggva nokkuð skarð í kostnaðinn við mentaskóla á Akureyri. Jeg geri því lítið úr sparnaðarástæðu hans.
En þá er að athuga, að þó að hv. þm. (StSt) þyki grátlegt, að landið skuli sitja uppi með þetta hálaunaða embætti, sem hann telur óþarft með öllu, þá er til annað sjónarmið í þessu máli. Það er ekki talið prúðmannlegt af vinnuveitendum að reka menn úr þjónustu sinni að ástæðulausu. Og þó að þetta starf sje lítið nú og síldin hafi lagst frá Austurlandi, er engin ástæða til að ætla, að hún geti ekki lagst aftur þar að landi, nema hv. frsm. (StSt) hafi ráðstafað göngu síldarinnar á þann veg, að hún komi hvergi við nema á Siglufirði.
Jeg tel þetta frv. ástæðulaust frumhlaup, sem ekki sje til annars en að eyða tíma þingsins. Það er verri eyðsla á fje landsins að tefja þá menn, sem hingað eru komnir til þess að ráðstafa hag landsins, heldur en þó að þessum eina manni væri greitt kaup.
Þá skal jeg benda á eina hlið málsins í viðbót. Með því að vera altaf að rekast í að breyta síldarmatslögunum og fækka yfirmatsmönnum, er verið að veikja tiltrú erlendra síldarkaupmanna á íslenskri síld. íslensk síld þarfnast annars en að markaðshorfunum sje spilt. Jeg gæti trúað því, að Siglfirðingar og Eyfirðingar yrðu hv. flm. (StSt) ekkert þakklátir fyrir þetta frv., þar sem það mun verða til þess, að erfiðara verður að selja vörur þeirra en áður. Því að þess er að gæta, að þegar yfirsíldarmatsmannssýslanin væri lögð niður, mundu vottorð frá undirmatsmönnum missa gildi sitt allmjög og spilla fyrir sölu á allri síld. Það ætti því að fara með þvílík frv. eins og dómstólar fara venjulega með menn, er vekja óþarfa þrætu.