30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1032 í C-deild Alþingistíðinda. (2830)

141. mál, skoðun á síld

Þorsteinn Jónsson:

Það, sem á síðari árum hefir stuðlað mest að því að auka markað fyrir íslenskar afurðir og halda þeim í verði, er eftirlit það, sem hjer er með öllum útfluttum vörum. Þetta frv. er sparnaðarmál frá sjónarmiði hv. frsm. (StSt), og má vera, að nokkur sparnaður sje að því í bili, en þegar til lengdar lætur, mun það verða til hins mesta tjón. Ef síldarútveginum í heilum landsfjórðungi er gerður óleikur, fer sparnaðurinn að vera tvísýnn. Hv. frsm. (StSt) tekur aðeins tillit til síðasta árs, og af því að þá veiddist litil síld fyrir Austurlandi, dregur hann þá ályktun, að engar líkur sjeu til, að síld muni veiðast þar í framtíðinni. (StSt: Þetta er alrangt). En ef hv. þm. er ekki kunnugur síldveiðum á Austfjörðum, get jeg frætt hann á því, að þar var um eitt skeið meiri síldveiði heldur en þá var á Eyjafirði og Siglufirði. (PO: Það eru 20 ár síðan). Þó að nú sje lítil veiði þar, en mikil á Siglufirði, mun síldin ekki hafa gert samning við Siglfirðinga um aldur og æfi. Það gæti farið svo, að á næsta ári veiddist mikil síld fyrir Austurlandi, því að þar eru oft fiskisæl mið, og þó að lítið veiðist um eitt skeið, er það vitanlega ekki nema takmarkað tímabil, sem þar er fiskilítið. Ef síldarganga kæmi þar á næsta ári, er mikið vafamál, hvort nokkuð sparaðist. Yfirmatsmaðurinn á Akureyri yrði þá að ferðast austur þangað, og gætu þau ferðalög orðið alldýr.

Jeg vil leggja aðaláherslu á það, að með þessu er útgerðarmönnum gerður hinn mesti bjarnargreiði. Ef nokkuð veiddist til muna fyrir Austurlandi, og að því mun vitanlega reka, hvort sem eitt, tvö eða þrjú ár líða þangað til, gæti svo farið, að verri markaður yrði fyrir síldina en ella. Hv. frsm (StSt) er þingmaður fyrir kjördæmi, sem mikið hefir að segja af þessari atvinnugrein, og ætti honum að skiljast öðrum fremur, hve mikið þetta getur kostað fyrir aðra.

Færi svo, að samþykt yrði að leggja þetta embætti niður og síldin legðist aftur í sumar að Austfjörðum, mundi strax á næsta þingi koma fram frv. um að stofna þetta embætti á ný, og þá yrði það talið sjálfsagt. Hjer er því verið að gera leik að því að hringla með lög.

Þá er eitt atriði í málinu, sem að vísu mun ekkert höfuðatriði, að maður sá, sem hlut á að máli, er orðinn aldraður. Menn vita, hvernig þingið fer venjulega að, þegar menn, sem hafa verið starfsmenn ríkisins, þykjast misrietti beittir. Þeim eru þá veitt eftirlaun, sem eru alt að því eins há og föstu launin. Svo mundi og verða hjer, og færi þá sparðnaðurinn að minka. Auk þess verður að taka tillit til þess, að öflug mótmæli gegn þessu frv. hafa komið úr Austfirðingafjórðungi, og þau mundu ekki hafa komið, nema menn teldu þetta geta orðið til tjóns.