30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1037 í C-deild Alþingistíðinda. (2834)

141. mál, skoðun á síld

Pjetur Ottesen:

Það, sem fram er komið í þessu máli frá andstæðingum þess, er ekki annað en það, sem menn kannast svo vel við frá þinginu í fyrra. Það var sem sje mjög algengt á þinginu í fyrra, að þetta kvæði við, er gerð var einhver sparnaðartilraun, tilraun til að leggja niður eða sameina embætti, að nú ætti að fara að drepa viðkomandi embættismann. Virðist svo sem jafnan sje gengið út frá því, að þessum mönnum, sem um er að ræða, og fyrir einhver atvik hafa komist inn á ríkissjóðinn, sje gersamlega ólífvænt og geti ekki bjargast á annan hátt en að ríkissjóðurinn haldi áfram að ala önn fyrir þeim og bera þá á örmum sínum; sama viðkvæðið er, þó embættið eigi nú ekki að leggjast niður fyr en það losnar, þá er það vitanlega talið mannsmorð að skipa ekki í það að nýju. Meðan þessi hugsunarháttur er ríkjandi, er ekki von, að mikið verði ágengt að ljetta embættabáknið. Það lítur svo út, með öðrum orðum, sem embættin sjeu til orðin fyrir manninn, en maðurinn ekki fyrir embættið.

Hvað snertir þetta frv., sem hjer um ræðir, þá er búið að leiða skýr rök að því, að þetta embætti sje með öllu óþarft. Veiðin hefir verið svo lítil þarna austur frá nú um fjöldamörg ár, að ekki svarar kostnaði að hafa þarna sjerstakan yfirmatsmann, eins og best sjest á því, að síldarútflutningurinn síðastliðið sumar var ekki meiri en það, að kostnaður af embættinu nam sem svarar fullum 6 kr. á hverja síldartunnu.

Því hefir verið haldið fram, að sú síld, sem þarna myndi veiðast og flutt yrði út, gæti spilt fyrir síldarmarkaðinum, ef þetta embætti fjelli niður. Hefir þetta verið nægilega hrakið af háttv. flm. þessa frv., 1. þm. Eyf. (StSt), er hann benti á, að yfirsíldarmatsmaðurinn á Siglufirði hefir umdæmi alt vestur á Strandir, og lætur hann undirmatsmenn annast matið þar upp á sína ábyrgð, eftir reglum, sem hann setur þeim. Hefir ekki borið á því, að síldin af Ströndum spilti fyrir markaðinum, og mundi það vart verða frekar, þótt umdæmi síldarmatsmannsins á Akureyri væri látið ná yfir Austfirði. Er það ekkert nema fyrirsláttur, að þetta myndi skaða síldarmarkaðinn. Myndi eins vel duga, hvað tryggingu snertir, að yfirsíldarmatsmaðurinn á Akureyri skipaði þarna undirmatsmann þann tíma, sem veiðin væri, og yrði það verulegur munur á kostnaði. Það er því ekki um aðra ástæðu að ræða gegn þessu frv. en þessa gömlu, að ekki hjálpi að leggja niður þau embætti, sem einu sinni hafa verið stofnuð, þó óþörf sjeu, því það sje að svifta starfsmenn ríkisins atvinnu. Hefir sú orðið raunin á hingað til, að ekki er fyr minst á að draga eitthvað úr útgjöldum ríkissjóðs en vissir menn í þinginu vaða uppi með ókvæðisorðum til þeirra, sem þetta vilja gera. Hafa nú 2 háttv. þm., þeir hv. þm. Dala. (BJ) og hv. 1. þm. N.-M. (ÞorstJ), sem best unnu að því að berjast gegn sparnaðarmálum á þinginu í fyrra, tekið að nýju höndum saman til þess að berjast gegn þessum sparnaði, og er það ekkert framar því, sem vænta mátti.

Jeg skal annars benda á það, að þessi mótmæli frá Seyðisfirði, sem lesin hafa verið hjer upp, munu aðeins byggjast á því, að þetta hefir slæm áhrif á efnalega afkomu þessa starfsmanns, en ekki á hinu, að á þessu embætti, eða hvað nú á að kalla það, sje nokkur þörf. Nú um 20 ára skeið hefir sáralítil síldveiði verið á Austfjörðum, og sýnist því, að síldin sje lögst þar frá. Hvort það stafar af ódugnaði Austfirðinga, eins og þm. Dala. (BJ) vildi gefa í skyn, að ekki veiðist þarna, veit jeg ekki, en þetta er nú staðreyndin, að ekki hefir veiðst þarna neitt sem nemur um svona langt árabil.

Vona jeg svo, að þótt sú raunin hafi orðið á, því miður, að mjög hafi dregið úr sparnaðarhug þingsins frá því í fyrra, þá sjeu samt nægar eftirstöðvar hans til þess að hægt verði að leggja nú niður þetta bráðóþarfa embætti.