30.04.1923
Neðri deild: 53. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1041 í C-deild Alþingistíðinda. (2836)
141. mál, skoðun á síld
Jón Baldvinsson:
Jeg tók það fram við fyrri umr. þessa máls, að jeg liti svo á, að mjer sýndist ekki svo sterk rök færð fyrir þessu máli, að jeg treystist til að greiða því atkv. Því hefir verið haldið fram, að hæstv. atvrh. (KIJ) mælti fast fram með þessu frv. En nú hefi jeg nýskeð komist á snoðir um, að þetta muni ekki vera rjett hermt eftir hæstv. ráðherra. Jeg hefi átt tal við hann sjálfan um þetta, og kannaðist hann ekki við að hafa haft svo sterk orð um þetta sem hv. flm. (StSt) heldur fram. Hjer við bætist svo, að ekki er búið að gera neina nánari skipun um störf síldarmatsmannanna, þótt frv. verði samþykt svona. Hefir háttv. fhn. (StSt) kannast við, að hann hafi ekki enn átt tal við síldarmatsmanninn á Akureyri um þetta. Er því ekki vist, að hann vildi bæta þessu á sig nema fyrir aukaborgun. Er ómögulegt að fullyrða, að ekki kunni að koma upp mótstaða hjá honum. (StSt: Jú, það er enginn efi á því, að hann verður þessu samþykkur). Finst mjer rjettast að vísa þessu máli til stjórnarinnar, og getur hún þá borið málið fram á næsta þingi, ef henni list það ráðlegt. Getur hún þá hafa ráðfært sig um þetta við yfirmatsmennina og í samráði við þá gert nákvæma skipun þessara mála.
Hv. þm. Borgf. (PO) sagði, að þetta embætti væri með öllu óþarft. Það þótti þó annað fyrir nokkrum árum, er það var stofnað. Ber það og vitni um, að eitthvað sje þarna að gera, að háttv. flm. talar nú um að bæta starfi á aðra menn. Myndu þeir tæplega gera þetta, ef það væri með öllu óþarft. Er og ómögulegt að segja, hve miklu kaupi þarf þá að auka við síldarmatsmanninn á Akureyri, ef þetta nær fram að ganga. (StSt: Það þarf ekki að bæta við hann einum eyri). Hv. þm. (StSt) getur ekkert um þetta fullyrt fyr en talað hefir verið við þennan mann.