28.02.1923
Efri deild: 7. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1094 í C-deild Alþingistíðinda. (2922)

34. mál, íþróttasjóður í Reykjavík

Flm. (Jónas Jónsson):

Aðeins stutt athugasemd.

Háttv. 4. landsk. þm. (JM) vildi halda fram, að frv. þetta ætti ekki eftir eðli sínu fram að ganga, því að það væri ekki landsmál, og bærinn einn ætti því um það að fjalla. Þetta er mótsögn hjá háttv. þm. (JM), því að það getur ekki verið rangt, þó að þingið láti til sín taka um framgang máls, sem annars er viðurkent að styrkja þurfi með framlögum úr landssjóði.

Hins vegar tel jeg, að bæjarstjórnin geti ekki mikið sagt, þó að þingið skerist í þetta mál, þar sem hún hafði ekki þroska til að sjá, að byggja þyrfti baðhús við leikfimishús barnaskólans fyr en í vetur. Og mun það einsdæmi, að í nokkurri borg sje bygt leikfimishús, án þess að baðhús fylgi. Bendir þetta á hinn argasta skrælingjahátt viðvíkjandi heilbrigðisframkvæmdunum í höfuðstaðnum.

Hvað viðvíkur því, að það lýsi stórhug að leggja þennan íþróttaskatt á, eins og háttv. 4. landsk. þm. (JM) komst að orði, þá hefir enginn annar en hann litið svo á málið. En hitt er rjett, að það lýsir aldrei stórhug að tefja fyrir góðu máli.

Að þetta frv. sje hringl, í sambandi við aðgerðir þingsins í fyrra í íþróttaskattsmálinu, er alls ekki rjett, því að þetta er í raun og veru alt annað mál, því að í fyrra átti íþróttaskatturinn að ganga til bæjarins, en nú á hann að ganga til þess að styðja íþróttir.