10.03.1923
Efri deild: 14. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í C-deild Alþingistíðinda. (2935)
51. mál, meðferð á því fé sem landssjóði áskotnaðist fyrir áfengi
Jónas Jónsson:
Jeg hefi ekki miklu við að bæta, þrátt fyrir ræðu hv. 2. þm. S.-M. (SHK). Hann lagði til, að frv. yrði ekki látið ganga til 2. umr. Samt kom hann ekki með nein rök gegn því, hvorki frá sjónarmiði bannmanna eða almennra hagsmuna.
Hingað til mun þessi hv. þm. (SHK) hafa haldið sig vera bannmann. Að líkindum hefir hann þá haft ákveðna skoðun um, að áfengisnautn sje óheillavænleg landi og þjóð Honum hlýtur enn fremur að vera kunnugt um, að inn í bannlandið hefir nú á síðustu tímum borist allmikið fje, bæði fyrir leyfilega og óleyfilega vínverslun. Þetta fje vil jeg að sje notað til varnar gegn áfenginu og menningarleysinu í landinu, meðan það flýtur í landssjóðinn. Þegar bannið kemur aftur, hverfur þessi tekjulind, og um leið nokkuð af þeirri nauðsyn, sem nú gerir óhjákvæmilegar sjertakar ráðstafanir móti þjóðarúrkynjun. Enn fremur gerði hann ráð fyrir, að jeg ætti að leggja fram áætlun um þessar tekjur. Var þess krafist af Sigurði Stefánssyni, er hann myndaði landhelgissjóðinn, að hann segði fyrir, hve mikið fje kæmi fyrir sektir árlega? Víst ekki. Enginn skynsamur maður heimtar áætlun, þegar svona stendur á. En 1913 gleypti þingið við hugmyndinni, af því að það sá, að hún var góð. En eins og kunnugt er, er sjóður þessi nú bráðum orðinn svo stór, að fyrir hann má kaupa skip til landhelgisgæslu. Þetta hefði hv. þm. (SHK) ekki átt að vera vorkunn að sjá. En það er nú svona, þegar menn skortir á um hyggindi. Að öðru leyti var hv. þm. (SHK) í allmiklu ósamræmi við sjálfan sig. Hann sagði, að ríkissjóður mundi líklega ekki mega missa þetta fje, og saknaði fjármálaráðherra til þess að gefa sjer upplýsingar, sem hann játar óbeinlínis, að sig skorti kunnugleika til að dæma um. Eðlilegasta skýringin á því, hvers vegna hann vill steypa víngróðanum beint í daglegu eyðsluna, er það, að hann mun reka minni til fjáraukalaganna fyrir 1920–21, þar sem hans stjórn, og þar með hann sjálfur, hafa gengið svo greypilega frá landssjóði, eins og þjóðinni er nú kunnugt.
Viðvíkjandi sumum meginatriðum í ræðu minni fór þessi hv. þm. (SHK) með meinleg ósannindi. Hann telur, að jeg hafi viljað, að þjóðvinafjelagið gæfi út fyrir þetta fje tómar skemtibækur. Jeg sagði fræði- og skemtibækur jöfn um höndum. Jeg geri ráð fyrir, að hann þekki þá ensku fyrirmynd, sem jeg tók, „Every Mans Library,“ sem gefið hefir í út mörg hundruð af bestu skáldritum og fræðibókum heimsins í ákaflega ódýrum útgáfum. Jeg veit, að einmitt slík fræðibókaútgáfa myndi hafa geysimikla þýðingu fyrir almenna menningu hjer á landi. Og svo mikla trú hefi jeg á þýðingu slíkrar útgáfu, hversu hún mundi stækka sjóndeildarhring kjósenda, að jeg vil fullyrða, að eftir að þvílík útgáfa hefði starfað í svo sem 20 ár, myndi alveg vonlaust fyrir hvaða frambjóðanda sem væri, að ætla sjer að vinna þingsæti hjer á landi, ef hann stæði á sama menningarstigi og hv. 2. þm. S.-M. (SHK).