10.03.1923
Efri deild: 14. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í C-deild Alþingistíðinda. (2939)

51. mál, meðferð á því fé sem landssjóði áskotnaðist fyrir áfengi

Flm. (Jónas Jónsson):

Viðvíkjandi því, er hæstv. forsrh. (SE) sagði, að frekar væri ástæða til að byggja landsspítala og Klepp en stofna sjóð þann, er frv. mitt fer fram á, er það að segja, að jeg hefi líka hugsað um byggingu þessara sjúkrahúsa. En af vissum ástæðum ekki komið með tillögur í þá átt enn þá.

Það er gert ráð fyrir, að landsspítalinn kosti 3 milj. kr., og í honum sjeu 150 rúm, eða helmingi fleiri en nú eru í Landakoti og erlent fjelag hjálpar okkur um. En ef frv. mitt nær fram að ganga, myndi 20 þús. manna njóta heilsubóta af sundhöllinni árlega, og allur þorri landsmanna njóta góðs af bókaútgáfunni, svo að jeg nefni ekki aðra liði hennar, sem sama má segja um. Jeg vænti því, að hæstv. ráðherra sjái, að frv. mitt er bygt á öðrum og víðari grundvelli.

Út af því, sem hv. 4. landsk. þm. (JM) sagði, skal jeg taka það fram, að jeg hefi lesið skjalið um veðsetningu tollteknanna, og jeg býst við, að jeg skilji ensku eins vel og hann og að líkindum dálítið betur, en get þó ekki komist að sömu niðurstöðu og hv. þm. (JM). Annars býst jeg við, að síðar verði frekari ástæða til að tala um veðsetninguna.

Háttv. 2. þm. S.-M. (SHK) skal jeg hjálpa til þess, að Kleppur verði bygður sem fyrst, án tillits til þess, hve margir þingmenn eru nú þegar á því stigi, að þeim kæmi vel að eiga þar athvarf.