10.03.1923
Neðri deild: 17. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (295)
29. mál, ritsíma og talsímakerfi
Frsm. (Þorsteinn Jónsson):
Jeg þarf í raun og veru ekki að bæta við það, sem jeg sagði við 1. umr. Samgöngumálanefnd hefir orðið okkur flutningsmönnum algerlega sammála og leggur til, að málið nái að ganga fram. Að vísu vildi einn nefndarmaður, hv. þm. Barð. (HK). ekki taka ákveðna afstöðu til frv. á fundinum, en viðurkendi þó nauðsynina á símalínu til Gunnólfsvíkur.