17.03.1923
Efri deild: 19. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (2962)
74. mál, húsnæði fyrir opinberar skrifstofur í Reykjavík
Sigurður Jónsson:
Ekki er hægt að segja, að hjer sje um stórmál að ræða, en þó hefir það haft talsverðan undirbúning.
Á síðustu árum hefir verið mjög þröngt um húsnæði hjer í Reykjavík, og hefir ríkið einnig fengið að kenna á því. Á þinginu 1919 kom til tals hjer á Alþingi, að ríkið keypti hús í Mjóstræti, til afnota fyrir ýmsar skrifstofur ríkisins, en horfið var þó frá því ráði þá.
Í lestrarsal Alþingis hefir nú legið frammi umkvörtun frá efnarannsóknarstofunni um algerlega ónógt húsnæði.
Eins og kunnugt er, þá er nú Landsbankinn að láta byggja hús, og getur hann leigt út talsverðan hluta þess, þegar það er fullgert. Húsið er eign bankans, en bankinn er aftur eign ríkisins, svo þar er með skyldum að skifta. Má því vænta þess, að þar geti orðið um hóflega leigu að ræða, þar sem ríkið á í hlut. Ætti að geta orðið viðhaldskostnaður með einhverri lítilli afborgun. Ef vænta má, að húsaleigan verði lægri þar en annarsstaðar, þá ætti það að geta haft einhver áhrif á húsaleiguna alment hjer í bæ.
Stjórnin mun nú hafa hugsað um þetta mál og fengið vilyrði frá bankanum um að sitja fyrir leigu á því húsrúmi, sem bankinn getur mist. þáltill. getur því virst óþörf, en er þó áhersla fyrir stjórnina um að framkvæma þetta.
Jeg fer svo eigi fleiri orðum um þetta, en treysti því, að ríkisstjórnin ráði fram úr því á sem hagfeldastan hátt.