25.04.1923
Efri deild: 48. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (2991)

107. mál, baðlyfjagerð og útrýming fjárkláða

Frsm. (Guðm. Ólafsson):

Jeg sje ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þetta mál, því eins og kunnugt er hefir það verið til umræðu á undanförnum þingum. Og í fyrra var samþykt þál. um að láta fara fram rannsókn á baðlyfjum og jafnframt hvort ekki myndi tækilegt að koma á innlendri baðlyfjagerð. Eins og sjá má í greinargerðinni hefir Gísli Guðmundsson gerlafræðingur haft þessar rannsóknir með höndum og gerir ráð fyrir að geta lokið við þær í sumar. Og er álit hans, að hjer muni mega búa til betri og jafnframt ódýrari baðlyf til útrýmingar fjárkláða en hingað til hafa verið notuð hjer. Því eins og kunnugt er hefir sumt af þeim útlendu baðlyfjum, sem hjer hafa verið notuð, reynst mjög ljeleg eða ónýt.

Nefndin hefir því fallist á tillöguna og leggur til, að hún verði samþykt.