10.03.1923
Neðri deild: 17. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í B-deild Alþingistíðinda. (300)

29. mál, ritsíma og talsímakerfi

Eiríkur Einarsson:

Þegar frv. þetta var til 1. umr., mintist jeg á nokkur atriði um framkvæmd símalaganna, að því er lagning nýrra lína snertir. Og þótt það, sem jeg vildi athuga, standi ekki í beinu sambandi við frumvarp þetta, þá vil jeg nota tækifærið og ítreka mál mitt, í vændum þess, að hæstv. atvinnumálaráðherra, sem nú er nærstaddur, taki því frjálsmannlega og veiti mjer upplýsingar og svör, þótt eigi sje farin hin formlega fyrirspurnarleið.

Sá rekspölur virðist nú kominn á, að svo og svo miklu fje sje varið til nýrra símalagninga, án þess að nokkur eyrir sje veittur til slíks í fjárlögum. Svo er það að minsta kosti um símaframkvæmdir á þessu ári, 1923. Fjárlögin veita ekkert til nýrra lína, en þrátt fyrir það eru nýjar símalínur gerðar, og vitanlega með ærnum kostnaði. Í líka stefnu virðist haldið samkvæmt fjárlagafrv. hæstv. stjórnar fyrir 1924; ekkert fje ákveðið til nýrra símalína, en hins vegar finnur stjórnin hvöt hjá sjer til að benda á ýmsar línur, er standi næst, ef fje fáist til aðgerða, og virðist sú talning af handahófi gerð. Og hví er stjórnin yfirleitt að stinga upp á ýmsum símalínum, úr því hún ætlar alls ekki fje til framkvæmda, eða á að halda áfram sömu leið, leggja nýja síma án íhlutunar fjárveitingavaldsins ?

Aðferð þessa tel jeg ranga og mjög varúðarverða. Það er nauðsynlegt, að fjárveitingavaldið, Alþingi, hafi sem nákvæmast yfirlit um allar greiðslur úr landssjóði og að allar greiðslur af almannafje sjeu ákveðnar af hinum rjetta hlutaðeiganda, fjárveitingavaldinu, ekki síst að því er stórframkvæmdir snertir, svo sem símalagningar. Það á sem allra sjaldnast að koma fyrir, að orkað geti tvímæla, hvort heimilt sje eða heimilt ekki að greiða stórfje úr fjárhirslu ríkisins, og öryggisleiðin er sjálfsögð, sú, að haldið sje fast um rjett Alþingis til að ákveða. hvort greiða skal og hve mikið, en sneitt hjá öllum millivegum, svo sem hjer virðist komið á stað. Því í fám orðum: Annaðhvort engar nýjar símalínur eða ákveðnar með fjárframlögum í fjárlögum. Það var gert til skamms tíma, og því má ekki hætta. Þessu skýt jeg jöfnum höndum til hæstv. stjórnar, og þá sjerstaklega hæstv. atvinnumálaráðherra, og fjárveitinganefndarinnar, sem hvorumtveggja stendur nærri að færa misfellurnar til lagfæringar.

Vil jeg að síðustu spyrja hæstv. atvrh. að því, hvort þessi aðferð um símalagningar, er jeg hefi látið óánægju mína í ljós um, sje hans ráð eða símastjóra eða beggja í sameiningu.