24.04.1923
Neðri deild: 49. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (3014)

125. mál, landmælingar og landsuppdrættir

Benedikt Sveinsson:

Viðvíkjandi 1. lið þessarar till. til þál. hefir hv. flm. (MJ) þegar bent á, að hann hafi haft þessa smugu, svo sem hann kvað að orði, til þess að stjórnin væri ekki bundin við að semja við danska herforingjaráðið eitt. Jafnvel þótt sjálfsagt sje, að þangað verði fyrst leitað, vegna þess starfs, sem herforingjaráðið hefir leyst af höndum hjer á undanförnum árum, þá er þó rjett, að stjórnin hafi óbundnar hendur til þess að leita til annara, ef þörf gerist eða það yrði að einhverju leyti hentara. — Gengismunur íslensku krónunnar móts við hina dönsku er oss óhagstæður sem stendur. En sumstaðar annarsstaðar er gengismunur oss hagstæður, t.d. á Þýskalandi, og því gæti það vel komið til mála, að stjórn vor leitaði þar fyrir sjer. Þar í landi mundi mega fá nóg af vel færum mönnum til þessa starfa, og auk þess hafa Þjóðverjar nýlega tekið upp nýja aðferð til landmælinga, sem bæði er fljótlegri og ódýrari. Er sú aðferð með þeim hætti, að þeir ljósmynda landið úr flugvjelum og nota síðan ljósmyndir þessar við tilbúning landsuppdráttanna. Hæðamælingar fremja þeir einnig á þennan hátt. Neyttu þeir aðferðar þessarar mjög á styrjaldarárunum, og reyndist hún bæði fljótlegri og ódýrari en eldri aðferðir, og auk þess enn þá nákvæmari en nokkur önnur.

Jeg vil geta þess, að jeg veit til, að herforingjaráðið mun hafa í hyggju að færa alla gömlu uppdrættina í hið minna horfið og gefa þá út á ný. Munu þá og verða leiðrjett þau nöfn, sem lagfæringar þurfa við.

Kem jeg þá að brtt. hv. þm. Dala. (BJ) um það, að rjett nöfn verði á uppdráttunum, og er það rjett, að sú tillaga er engin móðgun við herforingjaráðið danska. Nöfnin á uppdráttunum eru að vísu allvíðast góð og miklu betri en vænta mátti, þegar litið er á það, hversu íslensk örnefni eru venjulega afbökuð af útlendingum. Þó hefir komið fram ruglingur á nöfnum og ýmsar villur á ekki allfáum stöðum, þótt venjuleg stafsetning orðanna sje yfir höfuð rjett.

Herra Björn Bjarnarson í Gröf í Mosfellssveit hefir ritað um nöfnin á landabrjefum þessum, einkum í Mosfellssveit, og bent á margar örnefnavillur. Munu flestar þeirra stafa af því, að þar hafa eigi verið nógu kunnugir menn til aðstoðar. Jeg skal enn fremur nefna nokkur dæmi, sem mjer detta nú í hug, þótt eigi hafi jeg safnað skrá yfir villur þær, er jeg hefi rekist á, þegar jeg hefi litið í landabrjef þessi:

Hakaskarð í Grímsnesi er nefnt Hagaskarð. Frá örnefni þessu er sagt í Landnámabók; er skarðið kent við Haka, þræl Ketilbjarnar hins gamla að Mosfelli, svo að ekki er um að villast. — Ruglað er nöfnum á smávötnum tveimur fyrir ofan Elliðavatn. — Í Borgarfirði er ruglað nöfnum á bæjunum Guðnabakka við Þverá og Gunnlaugsstöðum þar uppi á Ásunum. Þá eru og í Örnólfsdal nefndar á uppdrættinum Rangárgilstungur, en þar er engin Rangá, heldur heita tungumar Rangagilstungur, kendar við þrjú gil, er þær liggja á milli og standa á ská hvert við annað. — Háleiksmúli er nefndur á Mýrum, en á vafalaust að vera Háleggsmúli. Þá er og skráð Bergsteinsvatn á Mýrum, og má vera, að það sje nú kallað svo, en í sóknarlýsing frá því um 1840 er vatnið nefnt Berserksvatn og sögð þjóðsaga til nafnsins. Hygg jeg það nafnið rjettara. — Djúpalónssandur undir Jökli er nefndur Dritvík, — alveg ranglega. — Víða er slept góðum og merkilegum örnefnum, sem vel hefði mátt koma fyrir og eftirsjón er að.

Þetta er ekki sagt til ámælis mælingamönnunum. Þeim er það sjálfum vel kunnugt, að ýmsar villur hafa orðið í nöfnum, og hafa þeir farið þess á leit við fróðan mann hjer í Reykjavík að laga og leiðrjetta fyrir sig nöfnin á uppdráttunum, til þess að hægt verði að gefa þá út með rjettum nöfnum þegar þeir verða prentaðir af nýju eftir minni mælikvarðanum.