10.03.1923
Neðri deild: 17. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (302)

29. mál, ritsíma og talsímakerfi

Atvinnumálaráðherra (KIJ):

Jeg var hjer ekki við 1. umr. málsins (varð að vera í Ed.), og var því ekki kunnugt um, að háttv. 1. þm. Árn. (EE) hefði komið fram með fyrirspurn þessa. Mundi jeg þá hafa kynt mjer þetta og svarað því, en nú er jeg ekki svo reiðubúinn sem skyldi, en skal þó svara nokkru. En verði það ekki fullnægjandi, getur hv. þm. komið með formlega fyrirspurn: þeim rignir hvort sem er nú niður.

Hv. þm. fanst mál þetta ekki vera komið á góðan rekspöl, og kendi það stjórninni. En þessi stjórn á þar enga sök á, heldur er þetta gert eftir undirlagi fyrri stjórnar og þingsins í fyrra. Ástæðan til þess, að fje var ekki veitt til símanna í fjárlögum var sú, að reyna að koma fjárhagnum í rjett horf, en það hefði ekki orðið, ef 180 þús. kr. hefðu verið veittar til þessa, heldur hefði þá orðið stór tekjuhalli. Er auðvitað sárt að þurfa að hefta framkvæmd þessa, en það er þó betra en að vera altaf í díkinu. Hv. þm. (EE) sagði, að útlit væri fyrir það, að stjórnin vildi ná þessu út fyrir íhlutun fjárveitingavaldsins. Jeg skil ekki, hvernig hann fær sagt þetta, ef hann hefir lesið athugasemdirnar við fjárlagafrv., sem hann hlýtur að hafa gert. Auk þess ætti hv. þm. að vita það, að stjórninni er veitt heimild til símalagninga samkvæmt sjerstökum símalögum. Er því hjer um ekkert gerræði að ræða.

Annars má minna hv. þm. (EE) á það, að stjórnin hefir farið lengst í símalagningu að þinginu fornspurðu í hans kjördæmi, er hún veitti fjeð til símans út í Þorlákshöfn. Þá spurði hv. þm., hvort það væri landsstjórnin eða landssímastjóri, sem rjeði þessu. Aðferðin er sú, að landsstjórnin leitar tillagna landssímastjóra, eins og hún leitar tillagna annara ráðunauta og forstöðumanna, og fer svo eftir því, sem henni þykir skynsamlegast, því að ábyrgðina ber hún. En það vil jeg taka fram, að enginn ágreiningur hefir orðið milli mín og landssímastjóra. Jeg met og hefi ætíð metið tillögur þessa manns mikils, því að jeg veit, að þær eru ætíð góðar og viturlegar, og eins hefir nú verið. Jeg veit, að hv. þm. ber mikið fyrir brjósti símalínu upp Skeiðin; talaði jeg við landssímastjóra um hana, og kvað hann þörf á henni, en þó rjettara að láta hana sitja á hakanum nú fyrst um sinn, vegna annara nauðsynlegri.

Hv. þm. (EE) sagði, að sýslubúar væru reiðubúnir til að vinna að símanum og leggja alt til. Jeg skal ekki draga það í efa, en langaði þó til að spyrja hv. þm. hvort tillögin sjeu til. Hingað til hefir það reynst svo, að ýmislegt hefir brugðist frá Arnessýslu, sem áskilið hefir verið til samgöngubóta.