20.04.1923
Efri deild: 44. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í D-deild Alþingistíðinda. (3047)
144. mál, póstflutningur í Skaftafellssýslum
Flm. (Jónas Jónsson):
Jeg skal taka það fram, að ekki er ætlast til, að ábyrgðarpóstur verði fluttur á þennan hátt. Annars skal jeg og taka það fram, að jeg tel skynsamlegt að láta málið ganga til nefndar, þótt hins vegar álit póststjórnarinnar geti ekki komið hjer til greina, ef þingið vill leggja út í þennan kostnað.