05.05.1923
Efri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (3064)

126. mál, bygging landsspítala

Forsætisráðherra (SE):

Það er rjett, sem hv. 6. landsk. þm. (IHB) tók fram, að konur buðu fram 20000 kr. til að fá teikningar erlendis frá. Þetta var svo borið undir nefndina, — Jeg held að hv. 6. landsk. þm. (IHB) hafi þá ekki verið búin að taka sæti í nefndinni —, en nefndin bjóst við, að slíkir uppdrættir myndu kosta um 100 þús. kr., og gat því ekki mælt með þessu við stjórnina, enda fjelst hún á tillögur nefndarinnar.