05.05.1923
Efri deild: 56. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (3065)

126. mál, bygging landsspítala

Sigurður Hjörleifsson Kvaran:

Það er aðeins örlítil athugasemd, vegna ummæla hv. 5. landsk. þm. (JJ) um 12 manna stofurnar. Honum uxu þær mjög í augum og taldi hann þær miður heppilegar. En jeg get gefið þær upplýsingar, að í stærstu og fullkomnustu spítölum á Norðurlöndum eru hafðar svo stórar stofur.