04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í D-deild Alþingistíðinda. (3080)

136. mál, endurskoðun löggjafarinnar um málefni kaupstaðanna

Jón Þorláksson:

Jeg átti von á, að hv. 2. þm. Reykv. (JB) kvartaði undan því, að allsherjarnefnd hefði sest á 2 frv. frá bæjarstjórn Reykjavíkur, og endaði hann ræðu sína á því að heimta, að þeim yrði skilað frá nefndinni. Jeg stend því upp sem formaður allsherjarnefndar til þess að taka á mig alla ábyrgð af því, að nefndin getur ekki orðið við þessum tilmælum. Vona jeg, að hæstv. forseti leyfi mjer að gera grein fyrir ástæðum nefndarinnar til þessa, því að þær standa að mestu leyti í sambandi við þessa tillögu, þó að jeg verði að fara út fyrir hana að einhverju litlu leyti.

Annað þessara frv. er frv. um kosningalög fyrir Reykjavík á þskj. 95. í því eru ýms sjerákvæði um kosningarrjett, kosningar og kjörskrársamningu fyrir Reykjavík, sem eru ný að því leyti, að hingað til hefir ekki verið sjerstök löggjöf fyrir Reykjavík í þessu efni, heldur sameiginleg löggjöf fyrir alla kaupstaðina, og að miklu leyti fyrir öll sveitarfjelög líka. Efnisákvæðin eru hin sömu, og kosningarrjettur um sveitarmálefni var upphaflega eins á öllu landinu, en er nú orðinn nokkuð mismunandi. Allsherjarnefnd lítur nú svo á, að engin ástæða sje til, að kosningarrjettur um sveitarmálefni sje ýmislegum skilyrðum bundinn víðs vegar um landið. Vona jeg, að hæstv. stjórn athugi þetta og gangi svo frá, að þessum málefnum verði skipað á einn veg fyrir alla kaupstaðina og einn og sami grundvöllur verði fyrir kosningarrjetti um sveitarmálefni um alt landið. Þetta er ástæðan til þess, að nefndin þóttist ekki geta lagt til, að sett yrðu sjerstök ákvæði í þessum efnum fyrir Reykjavík, samtímis því, að önnur löggjöf um málefni kaupstaðanna yrði endurskoðuð. Þetta kosningalagafrv. grípur einnig inn í aðra löggjöf, tilskipun um stjórn kaupstaðarins, og gerir breytingar á henni, sem eiga ekki heima í kosningalögum.

Jeg kem þá að hinu frv., um bæjargjöld í Reykjavík. Er þá fyrst að geta þess, að frv. um sama efni hefir áður legið fyrir Alþingi. Aðalatriðið í því var að lögleiða tekjuskatt til bæjarsjóðs í stað niðurjöfnunar eftir efnum og ástæðum. Það mál hafði fengið mikinn undirbúning í bæjarstjórn og á þingi, og hefði verið haldið áfram á sömu braut, væri óeðlilegt að tefja fyrir málinu. En með þessu frv. er öllum undirbúningi varpað fyrir borð og farið inn á nýja braut.

Í þessu frv. eru meginatriðin 3. í fyrsta lagi er farið fram á að lögfesta þá tilhögun, sem gerð hefir verið með konunglegri tilskipun um niðurjöfnunarnefnd í Reykjavík, og er heimildin fyrir henni í sjerstökum ákvæðum í tekjuskattslögunum frá 1921. Samkv. þessu er niðurjöfnunarnefndinni gerbreytt. Í henni eru nú 4 menn, kosnir af bæjarstjórn, auk skattstjóra, sem er sjálfkjörinn formaður nefndarinnar. Er þetta gert í því skyni að samræma niðurjöfnunina til bæjarsjóðs við tekjuskattsframtalið.

Um þetta mál er nú ekki annað að segja en það, að úr því að þessi konunglega tilskipun er komin á og enn er ekki fengin reynsla fyrir því, hvernig hún muni gefast, er að mínu áliti rjett að bíða nokkuð enn þangað til meiri reynsla er fengin af þessari konunglegu tilskipun, sem við nú höfum, og þegar sú reynsla er fengin, mætti taka til athugunar að breyta eitthvað til, t. d. að lögleiða þetta frv., ef menn þá álíta það rjettara.

Annað aðalatriði þessa frv. er það, að farið er fram á að gerbreyta reglunum um útsvarsskyldu, einkum rjettinum til að leggja útsvör á utanbæjarmenn. Það er nálega á hverju ári verið að breyta þessum reglum, að því er fleiri eða færri kaupstaði snertir, og nú stingur bæjarstjórn Reykjavíkur upp á svo víðtækum breytingum um þetta efni, að ekki eru dæmi til um það annarsstaðar frá. Þess vegna vill nefndin ekki afgreiða þetta frv. nú, en hún vill fá stjórnina til að koma á samræmi í þessum málum um alt land. Þó að þetta sje allerfitt, sjerstaklega að því er snertir útsvarsskyldu og kosningarrjett, ættu þó efnisákvæði laganna að vera þau sömu, eða því sem næst, um alt landið. Þessar tvær aðalástæður, sem jeg nú hefi tilfært, gera það að verkum, að nefndin vill ekki afgreiða þetta frv. á þessu þingi.

Þá er þriðji annmarkinn á þessu frv. bæjarstjórnarinnar, sem er að ákveða hátt lóðargjald af hverri lóð, 2% af matsverði lóðanna. Nefndin álítur, að í sjálfu sjer sje þörf nýrra fyrirmæla um þessi efni, þar sem það er orðið úrelt og á ekki lengur við að miða gjöld af lóðum við flatarmál, í stað þess að taka tillit til verðmætis þeirra. En þessi till. nær ekki nokkurri átt, að ákveða gjaldið svona hátt; það hefði að minsta kosti átt að deila upphæð þess með 2, eða með öðrum orðum hafa hámarksgjaldið 1%.

Það er alment viðurkent af öllum, sem nokkuð hafa hugsað um þetta mál, að ef leggja á svona háan skatt á lóðir í bænum, er það hið sama og tekið væri eignamámi sem svarar 2/5 af verði lóða til bæjarsjóðs, og þetta verða þeir einir að greiða, sem eru svo illa settir að vera eigendur að lóðum þegar lög þessi ganga í gildi, en ekki neinir þeir, sem seinna fá eignarrjett á þeim. Þetta getur því alls ekki átt sjer stað, og allra síst hjer í þessum bæ, þar sem lóðir eru komnir í mjög hátt verð. Jeg var ekki öruggari um þetta mál en það, að jeg fór og vildi ræða það við kjósendur mína; gerði jeg það og var það rætt á almennum fundi hjer í bænum með fullri stillingu og rökum, og frá bæjarstjórnarinnar hendi mætti þar einn velmetinn lögfræðingur, sem varði þar málið frá sjónarmiði hennar; en er leitað var atkvæða um þetta mál, fekst aðeins eitt einasta atkvæði með því. Og á sama hátt fór það og á þessum sama fundi, er leitað var álits manna um það, hvort þetta mál skyldi afgreitt nú af þessu þingi.

Jeg skoða þetta að vísu ekki neitt bindandi fyrir mig sjerstaklega, en þó þykir mjer gott að vita um stuðning kjósenda minna við mína skoðun á þessu máli. Skýt jeg svo þessu máli til hæstv. stjórnar, að þar sem að sumu leyti þessi lagaákvæði eru orðin úrelt, þá þarf að endurskoða þau ásamt samskonar ákvæðum um aðra kaupstaði landsins, sem eigi munu síður þurfa umbóta við en hjer; en ef það þætti óeðlilegt að hafa þessi ákvæði um Reykjavík í sama lagabálki og um aðra kaupstaði, mætti setja sjerstök lög fyrir Reykjavík um þetta, þar sem stjórninni sýndist þess helst þurfa við. Treysti jeg því, að stjórnin gangi svo langt í þessu máli sem tími hennar og starfskraftar hennar leyfa, með endurbætur fyrir Reykjavíkurbæ, en endurskoðun allrar löggjafar um alla kaupstaði landsins er mikið vandaverk, og það má helst ekki eiga sjer stað mikið ósamræmi í henni milli einstakra kaupstaða, hvort heldur Reykjavíkur eða annara bæja landsins.