07.05.1923
Neðri deild: 59. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (3100)
143. mál, húsmæðraskóli á Staðarfelli
Atvinnumálaráðherra (KIJ):
Að vísu er það hæstv. forsrh. (SE), sem hjer ætti að tala, en af því að hann þarf að vera við atkvgr. í Ed. hefir hann beðið mig að halda uppi svörum í máli þessu.
En annars má geta þess, að jeg er málinu vel kunnugur, því að jeg hefi haft stjórn Herdísarsjóðsins undir höndum í 13 ár.
Stjórnin hefir ekkert við það að athuga að gera þær rannsóknir, sem tillagan fer fram á, en fyrst verð jeg að slá fram þeirri spurningu, hvort búið sje að ákveða það endanlega, að skólinn skuli reistur á Staðarfelli, og hver hafi gert það. Jeg hefi heyrt á ýmsum hv. þm., að þeir telja víst, að Staðarfell hafi af þáverandi forsætisráðherra eða þinginu jafnvel verið þegið að gjöf, og þar með því slegið föstu, að skólinn ætti að standa þarna, en jeg á bágt með að trúa þessu.
Samkvæmt arfleiðsluskrá frú Herdísar Benedictsen heyra allar ráðstafanir til þess að koma arfleiðsluskrá þessari í framkvæmd undir landshöfðingja í samráðum við amtsráð Vesturamtsins, en þær ráðstafanir hljóta nú að heyra undir landsstjórnina, og enn fremur það viðaukaákvæði, að skólinn, þegar hann sje stofnsettur, skuli vera undir stjórn sömu manna, þ. e. a. s. nú undir stjórn landsstjórnarinnar. Þinginu kemur því mál þetta alls ekkert við.
Það var mjög eðlilegt, að framkvæmdin yrði falin landsstjórninni, því bæði hafði frú Herdís Benedictsen mjög miklar mætur á Magnúsi Stephensen landshöfðingja, og hann mun jafnvel hafa samið arfleiðsluskrána, því að hún er skrifuð með hans eigin hendi, og svo er þetta alveg eðlilegt. Það er því augljóst, að það er landsstjórnin ásamt sýslunefndum Vesturamtsins, sem geta ákveðið, hvar skólinn skuli reistur.
Jeg get því ekki álitið, að því hafi verið slegið föstu af þinginu, að skólinn skuli vera á Staðarfelli, en hafi svo verið gert, þá er það að mínu áliti algerlega óheimil ákvörðun, því að það heyri undir landsstjórnina.
Það er síður en svo, að menn hafi verið ásáttir um, að skólinn skuli vera á Staðarfelli. Áður var barist af miklu kappi fyrir því, að skólinn væri í Ólafsvík, til þess að notuð yrðu hin góðu húsakynni þar og aðrar góðar aðstæður. Um eitt skeið var mikið kapp lagt á, að hann yrði í Flatey, en enda þótt ætla megi þann stað æskilegan frá sjónarmiði gefandans, þá þótti hann þó ekki heppilegur. Enn fremur var talað um að reisa hann í Stykkishólmi, og loks hafa Reykhólar verið tilnefndir.
Um þessa fjóra staði hefir verið rætt, en aldrei fyr um Staðarfell, og því þykir mjer undarlegt að heyra nú, að búið sje endanlega að ákveða Staðarfell sem skólasetur.
Í till. þessari er farið fram á, að stofnaður verði húsmæðra skóli á Staðarfelli. Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) tók rjettilega fram, að samkvæmt arfleiðsluskránni væri gjafarfjeð gefið til þess að stofna kvennaskóla, sem mest í líkingu við kvennaskólann í Ytri-Ey, sem nú hefir verið fluttur að Blönduósi. Frú Herdísi var þetta mjög mikið kappsmál, og Magnús Stephensen bað mig að hafa hann sem líkastan Ytri-Eyjarskóla, ef mín nyti við þegar hann yrði reistur.
Það þarf því að breyta arfleiðsluskránni, en henni verður ekki breytt nema með konunglegum úrskurði; en síðasti vilji er jafnan álitinn heilagur, og því get jeg þess, að enginn muni fús til þess að brjóta hann, nema brýnar ástæður sjeu fyrir hendi og hin ítrasta nauðsyn. Þetta vil jeg biðja hv. þm. að athuga vel.
Við síðustu áramót mun sjóðurinn hafa verið 110000 kr., en árleg viðbót um 5000 kr., og get jeg ekki álitið þetta fje nægilegt til stofnunar og rekstrar skólans, og að hann hljóti því að bíða enn nokkra hríð, því það var áreiðanlega vilji frú Herdísar, að hann bæri sig sjálfur.
Að öðru leyti hefir stjórnin ekkert að athuga við það, sem till. fer fram á, og ei fús til þess að undirbúa frekari framkvæmdir í máli þessu.